Réttur - 01.11.1965, Page 39
RETTUR
247
BJARNI ÁSGEIRSSON INDRIÐI ÞORKELSSON
að „Réttur“ gæti orðið v.insæll. Indriði Þorkelsson á Fjalli yrkir
hástemmt hvatningarkvæði „Röðull réttlætisins“, er birtist sem
einskonar inngangskvæði, en Ríkarðnr Júnsson myndhöggvari teikn-
ar hina sérkennilegu, táknrænu kápumynd, sem var á „Rétti“ fyrstu
tíu árin. Birtisl mynd af henni hér með.
Viðtökur þær, er „Rétlur“ fékk, þá hann hóf göngu sína, munu
hafa verið sæmilegar hjá almenningi, en ágætar hjá þeim mönnum,
er fremst stóðu í félagsmálahreyfingum samtímans. Nákvæma á-
skr.ifendatölu vitum við ekki, en 100 eintök voru send til Vestur-
heims. Finnur Jónsson, þá póstþjónn á Akureyri, var útsölumaður.
Hann varð síðar einn af leiðtogum Alþýðuflokksins á lsafirði, varð
þingmaður 1933 og ráðherra í nýsköpunarstjórninni 1944. Andað-
ist 1951.
Yms blöð urðu til að vekja eftirtekt á Rétti, einkum Tíminn, eft-
ir að hann hóf göngu sína.
Skemmtilegt bréf er til frá þjóðskáldinu Matthíasi Jochumssyni
til Þórólfs Sigurðssonar, þar sem hann ræðir „Rétt“ m. a. Bréfið