Réttur - 01.05.1932, Qupperneq 28
og sósíaldemokratarnir töldu firru eina og spáðu að
yrðu sovétfyrirkomulaginu að falli, verður nú áreið-
anlega framkvæmd að fullu á fjórum árum og er þeg-
ar framkvæmd í mikilvægustu greinum framleiðslunn-
ar á þremur árum og jafnvel á enn skemmri tíma. Nú
er svo komið, að mörg auðvaldsríki eru að reyna að
skipuleggja framleiðslu sína á líkan hátt að ráði sósíal-
demokrata. En slík áætlun er ekki framkvæmanieg
þar sem auðvaldið ríkir, og verður jafnvel til þess að
auka enn meir andstæður þess skipulags,
Menningarframfarir í Sovétríkjunum eru stórkost-
legar á öllum sviðum. Nú eru fáir, jafnvel meðal gam-
almenna, sem ekki eru læsir og skrifandi. Almennri
sjö ára skólaskyldu verður að fullu komið á í lok þessa
árs. Auk þess er hverjum verkamanni gefinn kostur
á æðri verklegri og bóklegri menntun. Nemendur fá
alla kennslu ókeypis og fá námsstyrk svo háan, að
fullkomlega nægir til lífsviðurværis.
Við allar verksmiðjur eru byggð funda- og samkomu-
hús, og í sambandi við þau kvikmynda- og leikhús. —
Bókasöfn og lessalir eru í öllum þessum húsum. Hér
dvelja verkamenn í frístundum sínum og er félagslíf
þeirra öllum til fyrirmyndar. Ríkið ver stórfé árlega
til slíkra bygginga víðs vegar um landið. Á Islandi er
fræðslumálakerfinu mjög svo ábótavant, lítið sem ekk-
ert gert til þess að veita alþýðunni nauðsynlega mennt-
un, og nám við æðri skóla ókleift fyrir fátækari stétt
verkamanna.
Alþýðan í Sovétlýðveldunum hefir ekki aðeins losað
sig undan arðráni hinnar innlendu borgarastéttar,
heldur hefir henni einnig tekizt að gera land sitt óháð
arðráni hins alþjóðlega auðmagns meðan íslenzk al-
þýða enn stynur undir tvöföldu oki hins innlenda og
erlenda auðmagns.
Félagar! Allt þetta hefir ykkur tekist vegna þess
að þið hafið undir forustu Kommúnistaflokksins sigr-
að borgarana með byltingu og tekið völdin í ykkar
hendur. Við höfum komizt að raun um að alræði ör-
e^anna er ekki orðin tóm, heldur veruleiki, að hér rík-
ir verkalýðurinn og fátækir bændur, undir forustu
Kommúnistaflokksins, sem framkvæmir vilja alþýð-
unnar. Verkalýðurinn veit, að hann vinnur fyrir sjálf-
an sig, skipar sér í áhugalið, sem myndar hið frum-
lega kerfi sósíalistiskrar samkeppni um land allt.
92