Réttur - 01.05.1932, Page 58
þessu reyna þeir að beina athygli sjómanna og verka-
manna frá aðalatriðinu — baráttu og samfylkingu móti
launalækkunum. Aðstoð kratabroddanna í ofsóknunum
gegn kommúnistum og róttækum verkalýð, afhjúpar
einnig auðvaldsþjónustu þeirra og fjandskap við auk-
in samtök og samfylkingu verkalýðsins 1 dægurbarátt-
unni. —
Kommúnistaflokkurinn hefir óþreytandi brýnt fyrir
verkalýðnum nauðsyn samfylkingarinnar, til þess að
verjast árásum atvinnurekenda, og til þess að sigra í
baráttunni fyrir hagsmunakröfunum. Verkalýðurinn
hefir, undir forustu kommúnista á Akureyri og víðar,
sannað í reyndinni, hvers samfylkingin er megnug.
Kjörorð sjórrumna og hafnarverkamanna í dag er
samfylking gegn launalækkunum, en fyrir atvinnu, at-
vinnuleysisstyrkjum og betri lífsskilyrðum, samfylking
gegn hungursárás útgerðar-auðvaldsins. Og nú ríður á
að skapa þessa samfylkingu í reyndinni; undir stjóm
verkalýðsins sjálfs.
V í Ð S J Á
Stéttabaráttan harðnar.
Við harðnandi kreppu uxu að sama skapi tilraunir
íslenzku burgeisastéttarinnar til að velta afleiðingum
hennar af sér yfir á verkalýðinn með lækkuðum laun-
um. Eftir lok vertíðarinnar á Suðurlandi hófst árás
þessi fyrst fyrir alvöru undir forustu togaraeigenda í
Reykjavík, fyrst og fremst Kveldúlfs. Urðu þó ekki
opinberar deilur syðra, nema í Vestmannaeyjum, en
hins vegar tókst að lækka laun sums staðar, jafnvel
á fiskverkunarstöðvum í Reykjavík, með því að láta
vinna þar undir taxta, án þess að fá honum breytt op-
inberlega.
Maídeilan í Vestmannaeyjum. — Sigur verkalýðsins.
Launalækkunartilraun Kveldúlfs í Vestmannaeyj-
um mistókst. Var það því að þakka, að verkalýður
122