Réttur - 01.05.1932, Qupperneq 62
og- dómarar, hlýddu boðum hennar og blaðaæsingi..
Kommúnistar voru kallaðir fyrir rétt. Er þeir neituðu
að gefa nokkrar upplýsingar (— svo sem leyfilegt er
fyrir rétti í flestum löndum Evrópu —), meðan
hneykslismál yfirstéttarinnar væru kæfð niður, voru
4 þeirra dæmd í tugthús samkvæmt konungsbréfi frá
1795. Bréf Kristjáns VII Danakonungs, sem var vit-
skertur, eins og kunnugt er, og aldrei hefir verið birt
sem íslenzk lög, er notað sem átylla til að fangelsa
kommúnista 1932. Sjálfstæðisflokkurinn, sem glamr-
ar um „lýðveldi“, „móti konungseinveldi“, „móti
Danadrotnun“, lætur dæma í tugthús, upp á vatn og
brauði samkvæmt boðskap vitlauss Danakomgs frá'
1795. Hræsnin og yfirdrepsskapurinn náði hámarki
sínu. —
„Hungursstræka“ og kröfugöngur.
Fangelsuðu kommúnistarnir svöruðu með að neita
að borða „þurra brauðið". Verkalýðurinn úti fyrir
svaraði með mótmælum alls staðar af landinu og í
Reykjavík með voldugustu kröfugöngu, sem þar hefir
sézt. Lýðhreyfingin frá 7. júlí vaknaði á ný og skaut
borgurunum skelk í bringu. í viðureigninni við hinn
róttæka verkalýð og forustu hans, kommúnistaflokk-
inn, beit burgeisastéttin og varðhundar hennar í blá-
grýti. Á skammri stund skipaðist veður í lofti.
Burgeisablöðin steinþögnuðu af hræðslu og sneypu.
Alþýðublaðið þorði aldrei að segja frá fangelsunun-
um, en varaði við kröfugöngum, og bannaði „sínu
fólki“ að taka þátt í þeim; urðu þær þá hvað fjöl-
mennastar. Og hvorki dómsmálaráðuneytið né dóm-
arinn þorðu eftir kröfugönguna miklu að halda föng-
unum lengur inni, og þeim var öllum sleppt út.
En um allt land var rætt um réttarfarið þar sem
kommúnistar eru fangelsaðir út af því að berjast fyr-
ir atvinnu handa atvinnulausum, en bankastjórum,
ráðherrum og miljónamæringum hlíft við ákærum
fyrir svívirðilegt og glæpsamlegt atferli.
Kommúnistaflokkurinn hafði farið með sigur út úr
baráttunni við gerspillt réttarfar. Og bæjarstjórnin
hafði lært að taka tillit til atvinnuleysingjanna. Hún
lét 200 hafa vinnu næst.
126