Réttur - 01.08.1968, Blaðsíða 35
háskóla, minnkandi loftárásir á N-Vietnam
— allir þessir atburðir báru vott um þróun
og hreyfingu og gáfu framfarasinnum byr
undir báða vængi. Vonir þeirra eru nú að
engu orðnar, og andrúmsloftið er þrungið
annarlegum drunga og vonleysi, að því er
fréttamenn skýra frá. Friðarumleitanirnar
hjakka í sama farinu, og enginn virðist lengur
gefa gaum að þeim, friðarhreyfingin hefur
allt að því lognazt út af, svertingjarnir hafa
látið miklu minna á sér bæra en undanfarin
sumur, þótt komið hafi til uppþota í nokkr-
um borgum (einkum í Cleveland). Styrjald-
arreksturi.nn í Víetnam hefur fremur magnazt
en hitt; meira að segja hippíahreyfingin í
San Francisco hefur orðið deyfðinni og af-
skiptaleysinu að bráð.
Með tilliti til þess hvernig framboð réðust
fyrir forsetakosningarnar, er ekki undarlegt
þótt vonleysið hafi gripið hugi manna í bili.
Nixon og Humphrey eru að vísu næsta ólíkar
manngerðir, misjafnlega skapi farnir og allur
ferill þeirra er ólíkur, en í raun og veru er
Þrtðji frambjóðandi George
Wallace og eiginkona hans.
Hubert Humphrey.
það hverfandi lítið sem skilur þá að í póli-
tískum efnum. Það er í hæsta lagi hægt að
greina hjá þeim mismunandi áherzlur, hinar
sömu og hafa hingað til forðað flokkum
demókrata og repúblikana frá því að renna
saman í eina „þjóðstjórnar-samsteypu ". Báðir
hafa svipaða afstöðu til tveggja höfuðvanda-
mála bandarískra stjórnmála, Vietnamstríðs-
ins og kynþáttavandamálsins (sem réttara
væri að kalla „vandamál hvíta mannsins").
A flokksþingi demókrata í Chicago svín-
beygði Humphrey sig undir stríðsstefnu John-
sons, en Nixon gagnrýnir aftur ríkisstjórnina
fyrir að sýna of mikið hik í styrjaldarrekstr-
inum. Báðir játa þó í orði kveðnu nauðsyn
þess að draga Bandaríkin upp úr stríðsfeninu.
Varla verður meiri munur greindur á afstöðu
þeirra til kynþáttavandamálsins; ef nokkur
er, þá er Nixon „harðari" í garð svertingja,
hampar slagorðinu „Law and order" (lög og
regla), en Humphrey svarar með orðunum
„Order and justice" (regla og réttlæti). Hinn
síðarnefndi mælir með auknum fjárveiting-
159