Réttur - 01.10.1977, Qupperneq 1
létbir
60. árgangur
1977 - 4. hefti
Rotnunin í „viðskipta“lífi íslenskrar burgeisastéttar verður æ opinberari.
Hvert hneykslið rekur annað. Verðgildi hundruð miljóna íslenskra króna
finnast í dönskum bönkum — skattsvik og lögbrot. Þúsundir miljóna ísl.
króna í erlendri mynt „blunda“ enn í þýskum, enskum, amerískum og sviss-
neskum bönkum, — finnast máske aldrei, „fínir menn að verki. — Stór-
fengleg gjaldeyrissvik komast upp í sambandi við skipakaup erlendis, —
svik, lögbrot. — Einn starfsmaður Landsbankans stelur tugum miljóna króna
með fölsun skjala á nokkrum árum. Þjófnaður, lögbrot. — Og þannig mætti
lengi telja.
Ljót eru þau lögbrot. Og svo gersamlega gagntekur auðgunarsýki íslenska
burgeisastétt að hún hróþar nú á enn meira „frelsi" sér til handa, til að
ræna almenning, svo það séu ekki einu sinni lögbrot að stela af alþýðu fé
„Frjáls skráning krónunnar" er síðasta krafan, vafalaust að undirlægi
amerískra lánardrottna, bergmáluð á fundi íslenskra fjármálamanna um
„nýsköpun íslensks fjármálalífs“ og flutt fram hátíðlega í ræðu forsætisráð-
herra.
Ljót eru þeirra lögbrot, þá tugum og hundruðum miljóna króna er stolið,
— en Ijótari þeirra lög, þá þúsundum miljóna er lævíslega rænt. Jón Hregg-
viðsson orðaði það forðum svo: „Vont er þeirra ranglæti, verra þeirra rétt-
læti“.
Gengislækkunin hefur verið hin iagalega aðferð íslenskrar borgarastéttar
til að ræna jafnt vinnulaunum verkalýðs sem fjársjóðum alþýðu — allt á
löglegan hátt, frá því ameríska auðmannastéttin, útfarin í arðránsaðferð-
unum, kenndi burgeisastéttinni klæki þá hér 1947.
1950 var að amerísku undirlagi, dollarinn nær þrefaldaður með „lögum",
úr 6.32 í 16.50, verðgildi sjóða og sparifjár stórminnkað og kaupgjald verka-
manna skorið niður um þriðjung (úr 1.40 dollurum 1947 í 0,89 árið 1953).
Og samtímis óð amerískur her inn í landið, hertók það og gerðist stærsti
atvinnurekandi landsins, með láglaunaðan verkalýð og atvinnuleysi allt [
kring.
Hlýðnir þingflokkar borgarastéttarinnar löghelga síðan hvert ránið á fætur
öðru: 1967—68 er dollarinn hækkar úr 44 kr. í 88, — sparifé og sjóðir
rændir helmingi verðgildisins, laun lækkuð að sama skapi. — 1974 var doll-
209