Réttur - 01.10.1977, Síða 32
hlutafé,sem „valinkunnir heiðursmenn"
fengju að kaupa með góðum kjörum. Að
vísu gæti þessi „góði business“ strandað
á því að þessir lierrar kæmu sér ekki sam-
an um skiptingu hlutafjárins og þar með
valdsins.
(Þegar ég nefni það að selja 5000 milj-
ón króna eign — eins og Landsbanka Is-
lands — á 200 miljónir króna hlutafélagi
„réttra manna", þá er það svipað hlutfall
milli söluverðs og eignar og var, er Al-
þingi sanrþykkti fyrir 30 árum heimild
til að selja hlutabréf ríkisins í rekstrar-
félagi Áburðarverksmiðjunnar á nafn-
verði — og gera kaupendurna að eigend-
um um leið: selja 187 miljón kr. eign á
6 miljónir. Kaupendur hefðu þá verið
S.Í.S. og einstakir fésýslumenn: helm-
ingaskipti? — Og frekja braskaranna í
Ihaldinu og sálufélaga þeirra í Framsókn,
hefur ekki minnkað á síðustu 30 árum.
Og þessum sömu kumpánum hefur
haldist það uppi áratugum saman að láta
ríkið selja olíufélögum samskonar helm-
ingaskiptamanna alla olíu og bensín, sem
rikið kaupir, svo réttir menn geti grætt
á því).
Það er lífsnauðsynlegt að alþýðan öl 1
átti sig á Jdví hve hættulegur sá áróður er,
sem fésýsluflokkarnir reka gegn „ríkis-
bákninu“. Það Jrarf að skipuleggja ríkis-
fyrirtækin betur en nú er gert - ekki láta
braskarana stela þeim.
En Jrað bákn, sem er að sliga þjóðina,
er verslunarauðvaldið með allri þess of-
hleðslu, eyðslu og skipulagsleysi: tugi
tryggingafélaga í stað eins eða Jrriggja,
þrjú olíufélög í stað eins, hundruð lieild-
sala o. s. frv. Og þetta verslunarvald er
með „frjálsri“ verslun sinni: sífelldum
viðskiptahalla að steypa þjóðinni í ó-
botnandi skuldafen - og braskpostular
þess standa í fararbroddi í hvert sinn, er
kauphækkanir verða, heimtandi verð-
hækkanir, verðbólgu og gengislækkanir,
en tryggjandi sjállu sér víðtækt skatt-
frelsi.
Aljiýða íslands verður því að vera vel
á verði gegn áróðri fésýsluflokkanna og
fyrirhuguðum aðgerðum Jreirra, en
herða að sama skapi baráttu sína fyrir
Jrví að steypa verslunarauðvaldinu úr
þeim valdasessi, sem það nú situr í, og
bakar sem fyrrum aljaýðunni og þjóðinni
allri stórtjón með pólitík sinni.
240