Réttur - 01.08.1979, Qupperneq 40
Rústirnar, sem Hitler skyldi eftir sig og SED tók við: Gamia Frankfurter Strasze í Beriin, — nú Karl
Marx-Allé.
andi elja og fórnfýsi hefur verið sýnd,
hörmuleg mannleg mistök einnig verið
gerð. En nú, eftir 30 ár er Þýska alþýðu-
lýðveldið (D.D.R.) með sínum 18 miljón-
um íbúa orðið eitt af tíu mestu iðnaðar-
ríkjum heims.
Þjóðartekjur, sem 1949 voru 22 milj-
arðar marka eru nú orðnar (1978) yfir
161 miljarður marka. Þjóðartekjur á
mann hafa vaxið úr 1200 mörkum 1949
upp í 9600 mörk 1978. Á einum vinnu-
degi voru 1949 framleiddar iðnaðarvör-
ur fyrir 100 miljónir marka, en nú (1978)
er dagleg iðnaðarframleiðsla einn milj-
arður marka. Fjárfesting var 1949 2,8
miljarðar marka, 1978 50,8 miljarðar. —
1949 voru fullgerðar í D.D.R. 29.800
íbúðir, en 1978 167.800, þar af 111.900
alveg nýjar, en 55.900 fullkomlega endur-
nýjaðar.
Uppbygging Austur-Þýskalands vir
þeim ægilegu rústum, sem það var í
1945, er hið raunverulega þýska, sósíalist-
iska kraftaverk, sem aðeins sá l'ær skilið,
sem sá og vissi um allar aðstæður, er við
var tekið.
Skal ei lengra rakið í Jretta sinn sú
saga, enda áður nokkuð um hana ritað í
Rétti fyrr.1
176