Réttur


Réttur - 01.01.1980, Blaðsíða 6

Réttur - 01.01.1980, Blaðsíða 6
Um það vitna meðal annars fjölmargar frásagnir liðins tíma af fólki, sem sótti í verið. Það er ekki aðeins dvölin í verinu, sem sagt er frá, en hún var mörgum erfið sökum ills aðbúnaðar, kulda og þræl- dóms. Ferðirnar, einkum í verið um há- vetur var mörgum tilefni til frásagnar. Ferðirnar gátu tekið marga daga, þar sem leið lá landshluta á milli yfir fjallvegi og aðra farartálma oft fótgangandi. En fólk var harðgert og lífsbjörgin réði í reynd ferðinni og rak á eftir, ásamt skyldunni við húsbóndann, sem sendi vinnumenn sína og húskarla í skipspláss til róðra. Þannig er ljóst að farandverkafólk er engin ný bóla, heldur sá hluti alþýðunn- ar, sem oft á tíðum hefur átt við hvað kröppust kjör að búa. Lausamennska hefur heillað margan manninn hér áður fyrr. Nokkur ævintýraljómi stóð af lausa- mennskunni, enda flestum gert mjög erf- itt um vik að ráða sig sjálfviljuga til starfa, vegna vistarbandsins og annars þess oks, sem lagt var á fólk. Lausa- mennska var í reynd bönnuð fram á síð- ustu tíma og áttu menn yfir höfði sér reiði yfirvalda, ef þeir voru á flakki, þó í atvinnuleit væri. Um það má víða lesa í heimildum, gömlum og nýjum. Aðbúnaðurinn Flestar kröfur farandverkafólks eru ljósar og skýra sig sjálfar. Þó kann að vera ástæða til að fara nokkrum orðum um hluta þeirra. Það er engin tilviljun að krafa um bættan aðbúnað er efst á blaði. Allir þeir sem hafa kynnt sér aðbúnað á verbúðum hér á landi sjá hvers konar aðstaða það er, sem mönnum er þar boðin. Reyndar er aðbúnaðurinn ákaflega misjafn, og 6 víða þannig að ekki er ástæða til að kvarta. En því miður eru þeir staðir fleiri, sem ekki geta státað af slíku. Fólk þarf að kúldrast í þröngum herbergjum, margt saman. Einkalíf og næði er því mjög af skornum skammti. f frístundum er enginn staður nema kojan til að dvelja í, vegna þess að setustofur skortir víða, eða aðrar þær vistarverur, þar sem fólk gæti notið bóka, blaða, sjónvarps og tón- listar í vistlegu umhverfi, eitt sér, eða í félagi við aðra. Til eru dæmi þess að op- ið er á milli vinnslusala og íbúðarhús- næðisins, þannig að trekkurinn og lyktin, sem óneitanlega fylgir fiskvinnslunni er viðloðandi allan sólarhringinn. Enga eldunaraðstöðu er að finna þótt fólk kysi að elda mat sjálft og lækka þannig fæðis- kostnað. Aðstöðu til þvotta er víða mjög ábótavant, hreinlætisaðstaða takmörkuð og þannig mætti halda áfram að telja upp. En það sem er hvað alvarlegast er skorturinn á öryggi þess fólks, sem í ver- búðum býr. Hér er fyrst og fremst átt við eldvarnir. í Vestmannaeyjum er dæmi þess að verbúð er á þriðju og fjórðu hæð vinnslustöðvar, undir timburþaki. Hús- inu er lokað skömmu fyrir miðnætti, jiannig að enginn kemst út né inn án þess að hafa samband við húsvörð á fyrstu hæð. Gluggar eru flestir lokaðir, en þeir sem eru opnanlegir eru byrgðir járn- rimlum. Ef eldur kæmi upp og ekki næð- ist í húsvörðinn er engin leið önnur en brjóta gler í glugga, sem eru fremur litlir í jookkabót, og kasta sér til jarðar. Full ástæða er til að setja sérstakar reglur um aðbúnað í verbúðum, en jaó má hengja hattsinn á reglugerð um íbúð- arhúsnæði, sem í gildi er og ætti að sjálf- sögðu að ná yfir verbúðir eins og annað íbúðarhúsnæði. j
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.