Réttur


Réttur - 01.01.1980, Blaðsíða 53

Réttur - 01.01.1980, Blaðsíða 53
út í október 1946, en síðan dofnar yfir fé- laginu uns næsta stórorrusta hefst kring- um inngönguna í NATO veturinn 1948-49. Atlantshafsbandalagið — 30. mars 1949 í júlí 1948 gerðist íslands formlegur aðili að svonefndum Marshallsamningi. Honum var fremur lítill gaumur gefinn af almenningi, enda á lítt skiljanlegu hag- fræðimáli. Það mun þó mála sannast, að einmitt með honum hafi íslendingar ver- ið reyrðir þeim römmu efnahagsfjötrum við Bandaríkin, sem örðugast verður að slíta. Natóaðildin 1949 og hemámið 1951 voru í reynd aðeins nánari útfærsla ])essa samnings. En ein óbein afleiðing lians varð vaxandi atvinnuleysi á næstu 2—3 árum. Hljótt var annars um undirbúning að stofnun Atlantshafsbandalagsins í flestum íslenskum blöðum framundir árslok 1948. og væri Þjóðviljinn ekki til, mætti naumast sjá, að íslendingar hefðu haft nokkurn pata af þeim fyrirætlunum. Þó ýjar Stefán Jóhann Stefánsson forsætis- ráðherra að þessu í ræðu sinni 17. júní: ,,Þær þjóðir hér í állu, sem á almennan mælikvarða eru nefndar smáþjóðir, þótt fjölmennar séu í samanburði við Islend- inga, eins og svonefnd Beneluxlönd, klífa nú þrítugan hamarinn til þess að skapa sér aukið öryggi, ef til átaka skyldi koma. Það er vissulega einnig alvarlegt umhugs- unarefni lyrir íslenzka lýðveldið og mik- ið undir því komið, að þar takist að ráða giftusamlega fram úr.“17) En blaðran springur eftir 1. desember 1948, og enn eru það háskólastúdentar, sem gefa upp boltann. Meirihluti Vöku hafði fallið í Stúdentaráðskosningunum í október, og sr. Sigurbjörn Einarsson var valinn sem aðalræðumaður í útvarpinu I. desember. Ræðan hét Haldi hver vöku sinni, og í henni eru m.a. þessar setning- ar: „Hlutleysið felur í sér hættu, það er ljóst, það felur í sér hernámshættu, það tryggir ekki gegn árásarhættu. En öll skakkaföll, sem vér verðum fyrir sem hlutlaus þjóð, eru bætanleg. Hitt verður aldrei bætt, ef vér gefum það upp með öllu því, sem slík uppgjöf felur í sér og leiðir af sér. — Þjóðin stenzt plágur flestra tegunda, annars værum vér ekki til í dag. — Enn mundi þjóðin lifa og geta átt sér framtíð, þótt svo óskaplega færi, að helmingur hennar félli fyrir aðvífandi eða stríðandi morðingjum. Hitt lifir hún ekki að gefa upp málstað sinn, hasla sér völl sem hjálenda, láta hernema líkama sinn, land ogsál.“18) Hófust nú ofboðslegar árásir á sr. Sig- urbjörn í hernámsblöðunum. Frægasta setning Morgunblaðsins í því sambandi er líklega þessi: „Lítt mun þeim duga tíst hins smurða Moskvuagents, séra Sigurbjarnar Einars- sonar, eftir að guðsmaður sá hefur til- kynnt alþjóð manna, að vel mætti myrða annan hvern íslending, ef fyrir þær blóðs- úthellingar fengist það hnoss, að íslenzka þjóðin yrði Moskvuvaldinu auðsveip."19) Stúdentar tóku upp hanskann fyrir ræðumann sinn á almennum stúdenta- fundi 14. desember, og lýsti meirihluti fundarmanna fullum stuðningi við skoð- un hans á hlutleysi íslendinga. Útvarpsræða forsætisráðherra, Stefáns jóhanns Stefánssonar, á gamlárskvöld hleypti nýrri skriðu af stað. Sú ræða hef- ur aldrei birst á prenti, en þjóðhollum mönnum þótti hún hið mesta endemi. 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.