Réttur


Réttur - 01.01.1980, Blaðsíða 52

Réttur - 01.01.1980, Blaðsíða 52
„Ef Bandaríkin setja það sem skilyrði fyrir efndum loforða sinna, að þeim séu veitt ný réttindi, er það ekki annað en nauðung. Þá eru þau ekki að semja við okkur sem frjálsa og fullvalda þjóð, held- ur sem hersetið land, er þau eiga alls kost- ar við. Nýja samninga við Bandaríkin getum við þá fyrst gert, er þau hafa stað- ið við samningsbundnar skuldbindingar sínar. Þá fyrst geta ísland og Bandaríkin samið sem jafnréttháir aðilar.“15) Fyrri umræðu um samninginn lauk á laugardag, og á sunnudaginn var haldinn mótmælafundur í Miðbæjarskólaportinu á vegum Alþýðusambands íslands, Stúd- entafélags Reykjavíkur og Bandalags ís- lenskra listamanna. Þar héldu aðalræð- urnar Stefán Ögmundsson, Sigurbjörn Einarsson og Halldór Kiljan Laxness, sem sagði m.a.: „Samningurinn táknar uppgjöf full- veldis íslands. — Engin þjóð getur samið af sér réttinn til að ráða landi sínu. — Þeir, sem semja slíkan rétt af þjóðinni, heita landráðamenn, hvort lieldur þeir skríða saman fleiri eða færri.“1G) Alþýðusambandið boðaði síðan alls- herjarverkfall til að mótmæla samningn- um frá kl. 1 á mánudag til jafnlengdar á þriðjudag. Verkfall þetta varð algert og er stórtækasta aðgerð, sem verkalýðshreyf- ingin hefur enn beitt sér fyrir í þessu máli. Sama dag var haldinn fundur á Lækjartorgi á vegum ASÍ og fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík. Á hon- um voru um 8 þúsund manns, sem þá þótti mikið í Reykjavík. Þar var samn- ingnum mótmælt og krafist þjóðarat- kvæðis. Sama kvöld var haldinn almenn- ur stúdentafundur í Háskólanum og samningsuppkastinu mótmælt. 1 kjölfar þessa rigndi enn yfir mót- mælasamþykktum gegn samningsupp- kastinu, einkum frá verkalýðsfélögum víðsvegar að. Kallað var og saman auka- þing Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, þar sem krafist var þjóðaratkvæðis um málið. En allt kom fyrir ekki, og samn- ingurinn var afgreiddur frá Alþingi 5. október með 32 atkvæðum gegn 19, en 1 sat hjá. Þá voru alþingismenn ekki nema 52. Á móti voru allir 10 þingmenn Sósíal- istaflokksins, 7 Framsóknarmenn og 2 Alþýðuflokksmenn. Vafalítið er þetta örlagaríkasti ósigur, sem íslenskir hernámsandstæðingar hafa beðið til þessa. Einkum vegna þess, að hroki og virðingarleysi meirihluta Al- þingis gagnvart kröfum almennings hnek'kti þeirri vaxandi sjálfsvirðingu, sem verkalýðshreyfingin hafði verið að öðlast vegna sigra sinna á næstliðnum ár- um. Má þar nefna niðurbrot gerðardóms- laganna 1942, lífskjarabyltinguna sama ár, þjóðfrelsisvakninguna kringum lýð- veldisstofnunina 1944 og loks frávísunar- kröfunnar um herstöðvar til 99 ára. Nú fylltust margir vonleysi, og sú skoðun gróf um sig, að slík mótmæli væru til- gangslaus, þau yrðu einfaldlega hunds- uð. A. m. k. hafa heildarsamtök verka- lýðsins ekki lagt út í þvílíkar aðgerðir síðan vegna þessa máls, heldur í mesta lagi látið þingsamþykktir nægja. Enda var nú við fjölþjóðaauðvald að etja. Þess ber líka að geta, að hernámssinnar náðu meirihluta í Alþýðusambandi íslands haustið 1948 og héldu honum í 6 ár. En um þessar mundir var Þjóðvarnar- félagið stofnað, og hóf það útgáfu blaðs- ins Þjóðvörn, sem kalla mátti að væri arftaki blaðsins Útsýnar frá árinu áður, enda aðstandendur þess hinir sömu eða svipaðrar gerðar. Nokkur tölublöð komu 52
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.