Réttur - 01.01.1980, Blaðsíða 17
INGIBJÖRG HARALDSDÓTTIR:
VEISLAN
í REGNBOGANUM
Kvikmyndahátíð var haldin í annað sinn
á vegum Listahátíðar í Reykjavík dagana
2.—13. febrúar 1980, og þótti sæta heil-
miklum tíðindum í menningarlífi höfuð-
borgarinnar. Sýndar voru samtals 34
kvikmyndir af fullri lengd og allmargar
stuttar myndir. Þá var efnt til verðlauna-
samkeppni urn bestu íslensku kvikmynd-
ina og kepptu þar fjórar myndir til verð-
launa, sem Ágúst Guðmundsson hlaut
fyrir myndina Lítil þúfa.
Af þessum 34 kvikmyndum voru fjórar
gerðar á íslandi og í samvinnu við ís-
lenska aðila: Saga Borgarœttarinnar,
Salka Valka, 79 aj stöðinni og Rauða
skikkjan. Tilgangurinn með endursýn-
mgu þessara mynda var tvíþættur: að
gefa þeirn kost á að sjá þær sem ekki
höfðu séð þær áður, og að minna á upp-
haf kvikmyndagerðar á íslandi, með það
fyrir augum að nú eru tímamót í jiessari
listgrein hér á landi. Eins og Sigurður
Sverrir Pálsson kemst að orði í grein sem
hann ritar í sýningarskrá Kvikmyndahá-
tíðar og nefnir „Vor í íslenskri kvik-
myndagerð": „Einnig getur verið fróð-
legt að bera jrað saman hvernig útlend-
ingar liafa notað íslenskt landslag í Jress-
um myndum og hvernig það er síðan not-
að af okkur sjálfum."
Þrjár kvikmyndir, sem sýndar voru á
hátíðinni, voru nokkuð komnar til ára
sinna. Náttbúlið, gerð 1936, er eitt af
meistaraverkum franska snillingsins Jean
Renoir, sem lést á síðasta ári, og var
myndin sýnd til minningar og í heiðurs-
skyni við þann mikla listamann. Þá voru
sýndar tvær japanskar myndir, Ég jædd-
ist, en . . . (1932) Eftir Yasujiro Ozu, og
Ævi Oharu (1952) eftir Kenji Mizoguchi.
Þessir tveir eru jafnan taldir til meistara
japanskrar kvikmyndalistar, og er tiltölu-
lega stutt síðan Jæir voru „uppgötvaðir"
á Vesturlöndum.
Þá eru eftir tuttugu og sjö kvikmyndir
af fullri lengd, sem allar eru nýlegar og
17
L