Réttur


Réttur - 01.01.1980, Blaðsíða 50

Réttur - 01.01.1980, Blaðsíða 50
liðum mest fyrir að eiga ekki og megin- orka þjóðarinnar í nærfellt hálfa aðra öld hefur farið í að endurheimta. — Það sem ísum og eldi, áþján og sóttum tókst ekki á 6 öldum, ættu þá allsnægtir og auðsæld að hafa gert á 6 árum, þ. e. að blása úr okkur mannrænunni. — Við getum ekki gert sjálfum okkur og niðjum okkar verri málaspjöll en þau að gera ísland viljandi að víghreiðri. Við eigum einn banda- mann, Islendingar, og aðeins einn, sem aldrei bregst okkur, og það er rétturinn, rétturinn að guðs lögum til þessa lands. — Ef við bregðumst réttinum sjálfir, förum að leggja hann undir í alþjóðlegu glæfraspili, þá höfum við svikið sjálfa okkur í tryggðum, og hvers virði eru þá annarra þjóða tryggingar, ábyrgðir og skuldbindingar? — En þeir, sem af ótta við Rússa vilja flana í fangið á Ameríku, minna mig á óheppna fjallgöngumenn, sem hlaupast fyrir björg af ótta við tröll- in í þokunni."11) 17. júní 1946 sagði Ólafur Thors for- sætisráðherra um herstöðvamálið í ræðu sinni: „Tel ég ekki ástæðu til að ræða það á þessum frelsisdegi, einfaldlega vegna þess, að langt er um liðið, frá því að íslendingar tóku af skarið og kváðu upp úr með það, að þeir gætu ekki orðið við slíkum beiðnum. — Þau ummæli eru skýr og tvímælalaus. í þeim felst, að á friðartímum vilja íslendingar ekki hafa hernaðarbækistöðvar í landi sínu.“12) Alþingiskosningar fóru fram í lok júní, og kepptust þá flokkarnir um að krefjast þess eða a. m. k. gefa í skyn, að þeir teldu sjálfsagt mál að öllum kröfum um her- stöðvar væri endanlega hafnað og banda- ríska herliðið hypjaði sig brott. Allir flokkar nýsköpunarstjómarinnar unnu á og þó Alþýðuilokkurinn mest. Mikill uggur var þó greinilega enn í fólki um þetta leyti, og fram eftir sumri héldu áfram að berast samþykktir gegn herstöðvum frá verkalýðsfélögum, stúd- entasamtökum, kvenfélögum, ungmenna- og íjrróttasamtökum. Sambandsþing Ung- mennafélags íslands 5.-6. júlí krafðist brottflutnings herliðsins og taldi, „að vernd erlendra ríkja, sem beðið er um eða tekið mótmælalaust, geti verið jafn- skaðleg frelsi þjóðarinnar og framtíð sem beinar árásir."13) Bandaríkjastjórn hafði nú skilist, að hún hafði larið of fruntalega í sakirnar einsog á stóð, og ákvað í samráði við ís- lenska hollvini að taka upp áfangakerfi. Keflavíkursamningurinn 1946 Fimmtudaginn 19. september 1946 var svohljóðandi mál lagt fyrir Alþingi: „Til- laga til þingsályktunar um heimild fyrir ríkisstjórnina til að gera samning við Bandaríki Ameríku um niðurfellingu herverndarsamningsins og fl.“ Þetta og fl. var reyndar Keflavíkursamningurinn frægi. En í honum fólust áframhaldandi not Bandaríkjanna af Keflavíkurflugvelli næstu 6 ár. Svo var látið heita, að banda- rískt flugfélag American Overseas Air- lines fengi lendingarleyfi vegna birgða- flutninga til hernámsliðsins í Þýskalandi. í fxamsöguræðu sinni fyrir tillögunni sagði Ólafur Thors m. a.: „Að nefna þennan samning í sömu andránni og hið svokallaða herstöðvamál er goðgá. — Þannig báðu Bandaríkin þá um land af okkar landi til að gera það að landi af sínu landi. Nú aftur á móti afhenda Bandaríkin okkur Hvalfjörð, Skerjafjörð, Keflavík, allt ísland.“14) Brynjólfur Bjarnason sagði hinsvegar: 50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.