Réttur - 01.01.1980, Blaðsíða 9
h'kar ekki vistin einhverra hluta vegna og
vill ráða sig í vinnu annars staðar, þar
sem ef til vill væri meiri þiirf fyrir vinnu
hans, þá á hann það á hættu að missa at-
vinnuleyfið ogvera vísað úr landi.
Þar sem útlendingar í fiskvinnu eru
ráðnir venjulega til hálfs eða heils árs,
þá get ég ekki betur séð, en þessi ákvæði
stríði á móti þeirri meginreglu, sem gild-
ir í íslenskum vinnurétti um gagnkvæm-
an uppsagnarfrest, sem á báða bóga er
frá einni viku og lengst þrír mánuðir.
Farandverkafólk og verkalýðshreyfingin
Að sjálfsögðu er farandverkafólk fé-
lagsmenn í verkalýðshreyfingunni, og á
að slást fyrir sjálfsögðum réttindum sín-
um innan vébanda hreyfingarinnar og
með iiennar liðsinni. En það verður að
játast að staðreyndin er sú, að fjöldi far-
andverkafólks er ekki í neinu verkalýð-
félagi. Samkvæmt skipulagsreglum Al-
þýðusambandsins og lögum ber verka-
manni að vera í verkalýðsfélagi, ]oar sem
lögheimili hans er. Þetta hefur haft í för
með sér þann annmarka, að þeir sem að
jafnaði vinna fjarri sinni heimabyggð eru
jafnframt fjarri sínu verkalýðsfélagi. Þeir
geta ekki starfað innan þess félags, þar
sem þeir eru fullgildir félagsmenn, og
það sem er alvarlegast, þeir ná ekki að
greiða atkvæði um kaup og kjör, nema
fara heirn. En e.t.v. er á sama tírna í verka-
lýðsfélaginu, þar sem þeir eru að vinna,
atkvæðagreiðsla um nákvæmlega sömu
samninga, og þar ætti aðkomufólkið því
að geta látið álit sitt í ljós með þátttöku
í atkvæðagreiðslunni. Ef vilji er fyrir
hendi ætti að vera hægt að leysa mál af
þessu tagi. Skipulag vekkalýðshreyfingar-
mnar er því miður þungt í vöfum og
VíSa er aðbúnaSi að verbúSum mjög áfátt. Dæmi-
gerS þvottaaSstaSa farandverkafólks í verbúS:
Myndin er frá verbúS í Grindavik.
getur leitt til þess, að félagsmanni geng-
ur illa og seint að nota þann rétt, sem
hann á, þegar hann dvelur langt fjarri
sínu stéttarfélagi. Þetta getur átt við um
greiðslur úr sjúkrasjóðum, lífeyrissjóð-
um og vegna atvinnuleysis, þrátt fyrir
góðan vilja starfsmanna verkalýðsfélag-
anna. Þjónusta verkalýðsfélaganna við
sína félagsmenn og aðkomufólk er sums
staðar nánast engin. Það er varla von, ef
engin er skrifstofan og starfsmaður ekki
Iieldur. Vel rekin skrilstofa með hæfu
starfsliði er liverju verkalýðsfélagi mjög
dýrmætur þáttur starfseminnar og getur
verið grundvöllur öflugs félagsstarfs.
Það er samdóma álit þeirra, sem til
þekkja, að til þess að rétta hlut farand-
9