Réttur - 01.01.1980, Side 15
JON RAFNSSON
(1899-1980)
Jón Rafnsson hefur kvatt íslenska alþýðu hinstu kveðju, áttræður að aldri.
Allt líf hans sem þroskaðs manns var helgað baráttunni fyrir málstað hennar.
Allt atgervi hans, andlegt og líkamlegt, var helgað þjónustunni við frelsishreyfingu
hennar, — því var varið til að vekja hanatil meðvitundar um rétt sinn og vald,
stjórna baráttu hennar, er hún kenndi máttar síns, leiða hana í hörðustu stétta-
baráttu aldarinnar.
Allt frá Vestmannaeyjum til Akureyrar, allt frá Grundarfirði til Norðfjarðar, þvert og
endilangt um landið og hringinn í kringum það lá leið hans, alls staðar þang-
að, sem fátækir menn og konur risu upp til að heimta sinn rétt.
Allt landið var sem vígvöllur, er verkalýðurinn reis upp til verkfalla, hvers á fætur
öðru, — og þangað sem mest lá við að sigur ynnist fór Jón Rafnsson til stjórn-
ar í fylkingarbrjósti, í hörðustu hríðum kreppunnar miklu, sem fulltrúi Komm-
únistaflokksins, — heitin Saltslagur, Koladeilan, Novubardaginn, Borðeyrar-
deilan — og endalaust áfram, segja sína sögu — og hún er um leið saga Jóns
Rafnssonar.
Þegar sú rauða sóknarsaga að lokum verður skráð, verður nafn Jóns Rafnssonar
letrað með logandi letri bardagamannsins og brautryðjendans. Og sjálfur
letraði hann fyrir okkur einn heitasta kaflann um skrefin þungu á sigurbraut
fólksins fram til þess fyrirheitna lands þar sem sannleiki ríkir og jöfnuður býr.
Látum svo hið fagra kvæði Jóhannesar úr Kötlum vera hinstu kveðju samherjanna til
Jóns Rafnssonar:
Er hnigur sól að hafsins djúpi
og hulin sorg á brjóstin knýr.
Vér minnumst þeirra, er dóu i draumi
um djarft og voldugt ævintýr.
Þá komu þeir úr öllum áttum
með óskir þær er flugu hæst,
og gráta í vorum hljóðu hjörtum
hinn helga draum, sem gat ei ræst.
Og þá er eins og andvörp taki
hin undurfagra sólskinsvon,
og allir kvöldsins ómar verði
eitt angurljóð um týndan son.
Og hinnsti geislinn deyr í djúpið
— en daginn eftir röðull nýr
oss kveikir sama dýra drauminn
um djarft og voldugt ævintýr.
15