Réttur


Réttur - 01.01.1980, Síða 54

Réttur - 01.01.1980, Síða 54
Strax 2. janúar hélt Stúdentafélag Reykja- víkur fund af þessu tilefni, þar sem sam- þykkt var einróma tillaga flutt af Pálma Hannessyni rektor, Gylfa Þ. Gíslasyni prófessor og Kristjáni Eldjárn þjóðminja- verði. Henni lýkur á þeim orðum, „að ekki komi til mála að víkja frá þeirri stefnu, sem mörkuð hefur verið af ís- lenzkum stjórnvöldum og fylgt hefur ver- ið til þessa, að ísland geti af augljósum ástæðum aldrei orðið hernaðaraðili, og þess vegna álítur fundurinn, að ísland geti ekki á friðartímum tekið og eigi ekki að taka þátt í neinu hernaðarsamstarfi, þar sem það hefði í för með sér, að hér yrðu erlendar lierstöðvar og erlendur her.“20) Nú fer Þjóðvarnarfélagið aftur á stúf- ana og heldur fundi um málið í Reykja- vík og víða í nágrenni. Þetta liafði m.a. þær verkanir, að ýmis önnur félög og samtök hófu að ræða málið, og í lok mars höfðu um 70 slíkir aðilar samþykkt mót- mæli gegn þátttöku í NATO. 24. mars héldu háskólastúdentar fjöl- mennan fund, þar sem mjög hart var barist og lengi þótti standa í járnum, hvor lylkingin væri sterkari. Að lokum var þó samþykkt ályktun, þar sem krafist var þjóðaratkvæðis um málið. Það var þá, sem einn forkólfur Heimdallar sagði, að menn yrðu að hafa hemil á sannfær- ingu sinni í jafnalvarlegu máli. Þjóðvarnarfélagið og fulltrúaráð verka- 54

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.