Réttur - 01.01.1980, Page 60
Sambabwe
Löng og fórnfrek þjóðfrelsisbarátta al-
þýöunnar í Simbabwe er nú, vonandi
endanlega, til lykta leidd með sigri henn-
ar í þingkosningunum í mars 1980. Eftir
að hafa háð vopnaða þjóðfrelsisbaráttu
í sjö ár, sömdu þjóðfrelsisfylkingarnar
tvær, ZAPU og ZANU við hvítu yfirstétt-
ina og Breta um þingkosningar, þar sem
ákveðið var að hinir hvítu íbúar landsins
fengju 20 þingmenn af 100, og voru þeir
kosnir sérstaklega. Fékk flokkur Jan
Smith þá alla. Aðrir íbúar landsins, sem
bæði eru af afríkönskum, arabiskum og
indverskum uppruna, kusu 80 fulltrúa.
Fór það svo að flokkur ZANU, sem
Mugabe er formaður fyrir, fékk 57 þing-
menn, eða hreinan meirihlula d þingi
(63% atkvæða) og ZAPU-flokkurinn, sem
Nkomo er formaður fyrir, fékk 20%
og 20 þingmenn. Hins vegar fékk flokk-
ur Musurewa biskups, er allnána sam-
vinnu hafði haft við hvítu drottnarana,
aðeins 10% og 3 þingmenn. í landinu
eru einmenningskjördæmi.
Hefur nú Mugabe tekið við stjórn sem
forsætisráðherra. Er hann af mörgum tal-
inn marxisti og mun vera kristinnar trú-
ar, enda alinn þannig upp. Hefur liann
tekið upp þá stjórnarhætti, að reyna að
ná sem víðtækustu samstarfi innanlands,
einnig við hvíta menn, og vill varast
árekstra við fasistastjórn Suður-Afríku.
Mugabe
Nkomo hefur verið gerður innanríkis-
ráðherra og einnig eru tveir hvítir ráð-
herrar í stjórninni.
Það er mikils virði að fá Iiina hvítu sér-
fræðinga í landinu til heiðarlegs sam-
starfs, því .evrópsku nýlenduherrarnir
hafa víðast hvar í Afríku liindrað að
Afríkumenn fengju þá menntun, er þarf
til þess að stjórna nútíma þjóðfélagi, eða
þróa frumstætt þjóðfélag fram til nútíma
tækni.
Hins vegar hefur þessi sigur þjóðfrels-
issinna í Zimbabwe (Rhodesíu), vakið
60