Réttur


Réttur - 01.10.1982, Síða 3

Réttur - 01.10.1982, Síða 3
Frelsisbarátta íslendinga og erindrekar óvinanna Vér íslendingar stofnuðum lýðveldið 17. júní 1944 og fögnuðum því að vera endanlega frjálsir eftir sex alda nýlendukúgun. En þjóðin vissi þá ekki að Bandaríkin viðurkenndu lýðveidi vort í því skyni að ná landinu undir alda yfírráð sín eftir stríð. Mitt í hátíðahöldunum á Lögbergi talaði fulltrúi Bandaríkj- anna fagurlega, en hugsað var flátt samkvæmt því fornkveðna: fagurt skal mæla en flátt hyggja. ísland hefur nú verið hersetið í yfír 40 ár af innrásarher Bandaríkjaauðvaldsins, þessarar „hernaðar- og stóriðju-“ klíku, sem drottnar yfír Bandaríkjaþjóð. Þessi klíka keypti yfírráðin yfir Islandi af Bretum 1941 og síðan var ríkisstjórn íslands kúguð til að biðja Bandaríkjaher um vernd. Það var gert með 24 tíma úrslitakostum, — eins og Hermann Jónsson forsætisráðherra sagðt, en samn- ingur“ hafður að yfírvarpi. Sá samningur var svikinn 1945, en hernaðarklíka Bandaríkjanna heimtaði þrjár stöðvar á íslandi til 99 ára undir sín yfirráð til hernaðarumsvifa, (Hvalfjörð, , Skerjafjörð, Keflavíkurvöll). íslendingar neituðu. — Þá var nreð hótunum um hersetu áfram knúinn fram Keflavíkur- samningur, meðan auðvaldið ameríska vaeri að beygja soltnar og hrjáðar þjóðir Vestur- og Mið-Evrópu undir veldis- sprota sinn. Því verki var lokið 1949 með stofnun NATO. Síðan réðst Bandaríkjaher 1951 inn í fsland, þverbraut öll loforð Bandaríkja- stjórnar um „engan her á friðartímum“, knúði íslenska ríkisstjórn til ólöglegs samnings og hernam landið — og hefur hersetið það síðan. En nú er hernaðartæknin öll gerbreytt. Awacs-flugvélarnar á Keflavíkurflugvelli koma nú í stað Hvalfjarðar 1945: Þær stjórna eldflaugaskotuin kafbátanna í At- lantshafi og geta þannig hafið héðan þá árásarstyrjöld á Sovétríkin, sem hernaðar- klíka Bandaríkjanna hóf strax að undir- búa 1945 eftir lát Roosevelts. (Þá var ekkert NATO til, ekkert kjaftæði um „Iýðræði“, — aðeins blákaldur heims- valdadraumur eina atómstórveldisins: amerísk öld.) Samtímis ofbeldi og hótunum mesta herveldis jarðar gagnvart varnarlausu smáríki, íslandi, hefur svo heilaþvottur- inn verið rekinn með slíku offorsi þessi 40 ár, að þar sem hin gengna forustukyn- slóð Sjálfstæðisflokksins beygði sig nauð- ug og stundum blekkt undir hótunina, þá gengur nú ný kynslóð manna, er kalla sig til forustu í þeim flokki, fram fyrir skjöldu og heimtar „aukna þátttöku íslendinga“ í hernaðaraðgerðum innrásarliðsins og „býður“ þeim fleiri herstöðvar en Kefla- víkurvöll. — Þessir erindrekar hins út- lenda valds þykjast geta boðið innrásar- hernum íslensk landsvæði í skjóli hers hans. Þjóðfrclsisburátta vor íslendinga nú er um leið orðin baráttan fyrir lífi voru, fyrir tilveru íslenskrar þjóðar. 195

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.