Réttur


Réttur - 01.10.1982, Page 46

Réttur - 01.10.1982, Page 46
efnahagskerfi var lagður á viðreisnartíma- bilinu. Vinstri stjórnin 1971-74 mildaði áhrif þess án þess þó að breyta kjarna þess. Hægri stjórn Geirs Hallgrímssonar afnam þessar endurbætur og bætti við efnahagskerfi viðreisnarinnar þáttum til þess eins að mala atvinnurekendum gull á kostnað launþega. Þessi blinda fyrir- greiðslupólitík hefur leitt til þeirrar efna- hagslegu stöðnunar, sem hér er við að glíma. Um hana hefur launþegum og verkalýðshreyfingunni blygðunarlaust verið kennt og þeir látnir greiða kostn- aðinn. Atvinnurekendurnir, sjálfir hönn- uðir kerfisins og þeir, sem hagnast á tilvist þess, hafa á hinn bóginn ekki verið dregnir til ábyrgðar. Hitt meginatriðið er það, að síðan 1974 hefur kaupmáttur launataxta dregist aftur úr þjóðartekjum á vinnandi mann. Þessi breyting átti sér fyrst og fremst stað á árunum 1975-7. En ekki hefur tekist að snúa henni við að marki síðan. Með því að vinnutími hefur ekki aukist og launa- skrið skekkir hér samanburð óverulega, er nærtækt að túlka þessar tölur svo, að launþegum hafi á undanförnum árum ekki tekist að halda sínum hlut í þjóðar- tekjunum. Orsökina tel ég mega að finna í dvínandi mætti verkalýðshreyfingarinn- ar og minna atkvæðafylgis hins pólitíska arms hennar. Hvort tveggja má síðan rekja til þess, að íhaldssamri hugmynda- fræði hefur vaxið fylgi, enda hefur hún gagnrýnislítið fengið að hasla sér völl hér á landi sem erlendis í skjóli yfirburða- aðstöðu á áróðurssviðinu. 2. Efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar 21. ágúst sl. skýrði ríkisstjórnin frá þeim efnahagsráðstöfunum, sem hún hafði náð samkomulagi um að beita sér fyrir á komandi mánuðum. Þá þegar voru gefin út bráðabirgðalög um nokkur af- dráttarlausustu atriðin í samkomulagi rík- isstjórnarinnar. Jafnframt voru gefin fyrir- heit um frumvörp og stjórnarfarslegar aðgerðir til að framkvæma önnur atriði efnahagsáætlunarinnar. í efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar fel- ast, að hennar eigin sögn, fyrst og fremst viðbrögð við fjórþættum efnahagsvanda: 1. Samdrætti þjóðartekna á yfirstandandi ári um 5-6%. 2. Stórfelldum halla á viðskiptajöfnuði. 3. Rekstrarhalla atvinnuveganna, eink- um sjávarútvegs. 4. Horfum á vaxandi verðbólgu. Ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar gegn þessum meinta efnahagsvanda má í stór- um dráttum skipta í fjóra meginflokka: 1. Lækkun kaupmáttar kauptaxta laun- þega. Með framkvæmd bráðabirgðalag- anna um skerðingu verðbóta á laun 1. des. nk., gengisfellingunni í ágúst ásamt slöku verðlagseftirliti á þessu hausti má ætla, að kaupmáttur kaup- taxta launþega verði 5-7% lægri að meðaltali 1983 en að öðrum kosti hefði orðið. 2. Ráðstafanir til að draga úr kjara- skerðingu hinna lægst launuðu. Meðal þeirra ráðstafana má nefna: i) Sérstakar bætur til láglaunafólks, sem nema eiga 175 m.kr. á þessu og næsta ári. ii) Lenging orlofstímabila um því sem næst 4 daga ár ári. iii) Sérstakt átak til jöfnunar húshitunar- kostnaðar. 238

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.