Réttur


Réttur - 01.10.1982, Síða 47

Réttur - 01.10.1982, Síða 47
iv) Veruleg aukning lánsfjár til húsbyggj- enda. Ekki er fjarri lagi aö áætla, að þessar félagslegu ráðstafanir dragi um 3% úr framangreindri skerðingu kauptaxta að jafnaði. Jafnframt má ætla, að þessar hliðarráðstafanir hafi það í för með sér, að kjaraskerðing hinna allra lægst laun- uðu verði lítil sem engin. 3. Sérstakur stuðningur við atvinnuveg- ina. Gengislækkun er auðvitað veigamesti liðurinn í þessu efni. Fiskveiðarnar fengu einnig verulegt beint fjárframlag og sam- keppnisiðnaður óbeinan stuðning í formi hækkunar á vörugjaldi. 4. Almennarráðstafanir íatvinnumálum. Meðal þeirra ber helst að nefna stöðvun innflutnings á fiskiskipum og ásetning um takmörkun á stærð hans í framtíðinni. Einnig má minnast á fyrirheit um jöfnun starfsaðstöðu atvinnuvega, ráðstafanir til að draga úr offramleiðslu í landbúnaði og aukna lánafyrirgreiðslu til útflutnings- atvinnuveganna. Ástæðulaust er að rekja í ýtarlegu máli einstök atriði í efnahagsáætlun ríkis- stjórnarinnar. Á hinn bóginn er vert að íhuga helstu einkenni eða svipmót þess- ara ráðstafana frá hugmyndafræðilegu sjónarhorni, ef svo má að orði komast. Sé þannig litið á málið verður manni hvað starsýnast á eftirfarandi: Ríkisstjórnin virðist hafa komist að sömu niðurstöðu um megineðli efnahags- vanda þjóðarinnar og fiestar aðrar ríkis- stjórnir á undan henni. Helstu einkenni þessa vanda, skv. upptalningunni í upp- hafi þessa kafla, hafa verið árviss viðfangs- efni ríkisstjórna hér á landi síðustu ára- tugina án þess að teljandi árangur hafi náðst nema síður sé. Á þessum efnahags- vanda hefur ríkisstjórnin samt kosið að taka með þeim hefðbundnu ráðstöfunum, sem tíðkast hafa í landinu frá upphafi viðreisnar. Megininntak ráðstafananna er millifærsla tekna frá launþegum til at- vinnufyrirtækja. Aðferðin við millifærsl- una er aðallega tvíþætt; annars vegar gengisfelling, hins vegar skerðing verð- bóta á laun. Sem betur fer er það þó ekki svo, að umrædd efnahagsáætlun sé í einu og öllu eins og efnahagsúrræði íhaldsins. Mismunurinn liggur einkum í því, að nú er í mun ríkari mæli en oftast fyrr reynt að draga úr kjaraskerðingu hinna lægst launuðu. Ennfremur gætir nú nokkurs skilnings á því, að vera kunni, að efna- hagsvandann megi rekja til innri skipu- lagsvanda í atvinnurekstrinum sjálfum og óhagkvæmni einstakra þátta hans. Pá ályktun má m.a. draga af afstöðu ríkis- stjórnarinnar til stærðar fiskiskipaflotans og offramleiðslu í landbúnaði. Það er ann- að mál, að áform ríkisstjórnarinnar eru allt of veigalítil til að skipta nokkrum sköpum í þeim efnum. Um langan aldur hefur ríkt það ástand hér á landi, að hinn vel samhæfði kór opinberra efnahagsstofnana og samtaka atvinnurekenda með dyggum stuðningi öflugustu fjölmiðlanna hafa átt mestan hlut í að móta viðhorf almennings til efnahagsmála. Hin síðari ár hafa samtök atvinnurekenda meira að segja komið á laggirnar hagdeildum og eflt þær, sem fyrir voru, gagngert í þeim tilgangi að auka þessa „upplýsingaþjónustu" sína. Ekki verður annað sagt en þessi viðleitni þeirra liafi borið ríkulegan ávöxt á þessu ári. Formlegar pólitískar aðstæður voru 239

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.