Réttur


Réttur - 01.10.1982, Page 60

Réttur - 01.10.1982, Page 60
Fórnarlömb Bandaríkjaleppa. Múgmorð Bandaríkjaieppanna í Mið-Ameríku Múgmorðin, sem blóðhundar þeir, er auðvald Bandaríkjanna heldur við völd- um í E1 Salvador og Guatemala halda áfram. Samkvæmt heimildum kirkjunnar var 32 þúsund manna, kvenna og barna drepnir í E1 Salvador á tímabilinu október 1979 til ársbyrjunar 1982. í Guatemala voru fórnardýrin á sama tíma 11000, þar af 80% myrt utan við bardagasvæðin. Skelfingarnar, sem íbúar þessara Mið- Ameríkuríkja, verða að þola undir „verndarhendi“ forseta Bandaríkjanna eru ólýsanlegar: börn jafnvel drepin með byssustingjum, er einkennisklæddir morð- ingjarnir henda börnunum upp í loft og „grípa“ þau með byssustingjunum. Það eru enn sannmæli, sem forseti Mexíco, Porfirio Diaz, sagði um land sitt: „Veslings Mexico, svo langt frá Guði og svo nærri Bandaríkjunum.“ Sirnon Boli- var, frelsishetja Suður-Ameríku, orðaði hlutverk Bandaríkjanna svo: „Bandarík- in virðast kjörin til þess af forsjóninni að steypa Suður-Ameríku í eymd og volæði í nafni frelsisins.“ Fjöldamorðin í Beirut Pann 16.-18. september framdi her líbanskra falangista (fasista) fjöldamorð á þeim Palestínumönnum, fyrst og fremst konum, börnum og gömlum mönnum, er voru skildir eftir í Beirut, þegar hinir vopnuðu Palestínumenn fóru brott sam- kvæmt samningi. Munu þeir hafa treyst á að hið nýja lið, m.a. bandarískra her- manna, er koma skyldi, tryggði öryggi hinna varnarlausu íbúa. En ísraelsher hleypir fasistunum inn í borgina og eru þarna framin viðurstyggileg fjöldamorð á 2-3000 varnarlausum Palestínumönnum. Þetta ódæöi, sem vakið hefur reiði og fordæmingu um víða veröld, skrifast ekki aðeins á reikning falangista, heldur og ísraelshers og þeirrar ofstækisstjórnar, sem þar drottnar nú, svo og á reikning 252

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.