Réttur - 01.10.1982, Qupperneq 62
Varað við álhring 1966
í umræðunum um stofnun
svissnesku verksmiðjunnar á
Alþingi 1966 hafði Einar Olgeirs-
son varað alvarlega við því er-
lenda valdi, sem þar með væri
hleypt inn í landið. Bjarni Bene-
diktsson svaraði með því að
benda á ákvæðin um þjóðnýt-
ingu og þar með hefðu íslend-
ingar rétt til að taka þetta fyrir-
tæki í sínar hendur, ef þjóðar-
þörf krefði, fyrr en samningur-
inn segði. „Það er á valdi þeirra,
er með löggjafarvald fara hér
hverju sinni, að meta það eftir
grundvallarreglum íslenskra
laga og þá á gagnaðilinn vitan-
lega bótarétt í staðinn" sagði
forsætisráðherra. (Bls. 1535 í
B-deild Alþ.tíð. 1966).
í svari sínu mælti Einar Ol-
geirsson eftirfarandi viðvörun-
arorð: (Bls. 1597-1598 í B-deild
Alþ.t. 1966).
„Þegar viö erum aö ræöa um
þetta fyrirtæki, erum viö aö deila
um hvort viö eigum aö fá erlenda
stóriöju inn í landiö eöa íslenska
stóriöju".. .
„Deilan stendur um hvort þaö
ætti aö vera íslenskt eöa útlent,
hvort þaö ætti aö vera íslenskt
vald, sem þarna er um aö ræða,
kannske sambland af ríkisrekstri
eöa einstaklingsrekstri, eöa hvern-
ig sem við vildum hafa það, en í
öllu falli íslenskt, — eöa hvort það
á aö vera útlent meö alls konar
sérréttindum. Þaö er um þetta,
sem væri barist. Viö heföum ekki
verið í neinum vandræöum meö
þaö, íslendingar, ef viö heföum
mátt leggjast á eitt, t.d. núna, allir
flokkar hér í þinginu aö byggja upp
svona fyrirtæki. Þess vegna vil ég
líka alvarlega vara hæstv. ríkisstj.
viö, m.a. vegna þess, aö ég heyrði
hjá hæstv. forsrh. og hef heyrt
áöur hjá hæstv. iðnmrh., aö viö
ráöum viö hlutina, ef þaö skyldi
sýna sig, aö við hefðum reiknað
rangt núna eöa breytt rangt núna.
Þjóöin getur breyst, og hún getur
breyst til hins verra undir þaö
slæmu áhrifavaldi, aö okkar kyn-
slóð núna liti á þaö sem hnignun.
Þaö væri eins og að komast í eins
konar álög, ef þaö væri búiö af
auðvaldi þessa fyrirtækis um ára-
raðir aö iöka hér slíkan áróöur, aö
þaö væri búið aö gera íslendinga
aö slíkum umskiptingum, aö þeim
þætti sjálfsagt aö fá sem mest af
útlendu auömagni beint inn í land-
iö. Svissneski auöhringurinn ger-
breytir kraftahlutföllunum hér á ís-
landi, ekki aöeins á milli atvinnu-
rekendastéttarinnar og verkalýös-
stéttarinnar, heldur líka kraftahlut-
föllunum innan borgarastéttar-
innar sjálfrar, kraftahlutföllunum á
milli t.d. sjávarútvegsins annars
vegar eða þeirra, sem honum
stjórna, og þess hins vegar, sem
erlendis mundi nú vera kallað fjár-
málaauövald.
Það eru nú þegar menn í land-
inu, sem eru miklu, miklu
ógætnari í þessum efnum en
hæstv. ríkisstj. í hennar aðal-
flokki, í Sjálfstfl., eru menn, sem
nú þegar líta á það sem bjarg-
ræði, sem hjálpræði, að fá sem
mest af erlendu auðmagni inn í
landið og munu auðsjáanlega
berjast fyrir því sem einhvers
konar hugsjón. Ég efast ekkert
um, að þeir trúi því, að slíkt
auðmagn sé þjóðinni til slíkrar
blessunar, að það sé bara um
að gera að fá það, hvaðan sem
það kemur. Og ég vil minna
hæstv. forsrh. á, að þegar þessi
verksmiðja verður búin að starfa
í 10 ár, ef hún kemst á, er hann
orðinn maður yfir sjötugt. Þá
eru e.t.v. teknir við menn í Sjálf-
stfl., sem eru af þeirri kynslóð,
sem ekki hefur sams konar upp-
eldi og erfð í sínu blóði og okkar
kynslóð hefur haft, — sem ekki
hefur lifað á íslandi undir
dönsku flaggi, sem ekki hefur
þá tilfinningu fyrir okkar sjálf-
stæði, sem okkar kynslóð hefur
haft, menn sem fyrst og fremst
hugsa svo að segja alþjóðlega
hvað það snertir, að auðmagn
sé hlutur, sem sé góður, hvaðan
sem auðmagnið kemur, og það
sé hégómi að vera svona
hræddur við slíkt. Og það geta
þá verið slíkir menn, sem ekki
hafa þessa erfð i sínu blóði,
sem séu teknir við og hafi það
voldugan bakhjarl hér, þar sem
þessi auðhringur er og máske
þá fleiri, sem væru komnir í
hans kjölfar, að þær hugsanir,
sem við núna látum í Ijós, finni
ekki lengur hljómgrunn hjá meiri
hl. þjóðarinnar, þegar svo væri
komið. Það er þess vegna, sem
ég álít, að við eigum ekki að fara
inn á þessa braut. Við eigum að
stöðva þetta núna. Það er ekk-
ert, sem rekur okkur til þess.“
254