Réttur - 01.01.1975, Page 25
Blóðug jól í Guatemala
Böðlar Bandaríkjaleppanna halda áfram
handverki sínu
Þann 20. desember siðastliðinn tókst leynilögreglunni i Guatemala að ná leiðtoga
kommúnista í Guatemala UMBERTO ALVARADO, sem er skáld og rithöfundur. —
Leynilögreglan hafði tvisvar áður náð honum og reynt að hræða hann frá að starfa
að bættum kjörum og frelsi alþýðunnar í Guatemala, en kommúnistaflokkurinn er
bannaður og verður að starfa á laun. Seinast náðu þessir böðlar honum 1972 og píndu.
Nú ætluðu þessir böðlar hinsvegar ekki sð eiga þennan hugrakka hugsjónamann leng-
ur yfir höfði sér. Fyrst reyndu þeir á hryllilegan hátt að pína hann til sagna um skipu-
lag leynibaráttunnar. Þegar það tókst ekki, stungu þeir úr honum augun, ráku byssu-
stingina hvarvetna í andlit hans og skutu hann síðan. Líkinu fleygðu þeir síðan í
göturæsi.
Sú ríkisstjórn, sem lætur vinna þessi níð-
ingsverk, er undir sérstakri vernd Bandaríkja-
stjórnar. A síðustu árum hafa um 10000
kommúnistar og aðrir lýðræðissinnar og ætt-
jarðarvinir í Guatemala verið myrtir.
Þetta morð á foringja kommúnistanna nú
er ekki fyrsta fórnin, sem sú forustusveit
færir. Osorio hershöfðingi, kallaður „hýenan”,
sem var forseti á undan þeim, er nú situr
(Garcia), lét myrða Bernardo Alvarado
Monzon, þáverandi formann kommúnista, og
fimm félaga hans úr miðstjórn flokksins.
(Aður skýrt frá þeim morðum í „Rétti”).
Þeir voru allir píndir hræðilega áður, síðan
skotnir og líkunum fleygt í hafið úr flugvél.
Alþýðan í Guatemala lætur þó ekki bug-
ast þrátt fyrir ógnarstjórnina. I kosningum
síðasta árs greiddi meirihluti atkvæði gegn
harðstjóranum, en gripið var til falsana svo
böðlarnir héldu völdum, en skipt um for-
setalepp. 1. maí fjölmennti alþýðan út á göt-
ur til mótmæla, en ríkisstjórnin lét skjóta á
kröfugöngurnar, fjórir voru drepnir, fjöldi
særður og margir handteknir.
Það er nú rúmir tveir áratugir síðan Banda-
ríkjastjórn lét 1954 steypa framfarasinnaðri
borgaralegri stjórn Arbenz forseta í Guate-
mala, af því vissar framfararáðstafanir snertu
illa auðhringinn United Fruit, sem á mest
jarðnæði í landinu. Þá var það, sem Jakobína
Signrðardóttir orti kvæði það, sem hér er
birt nú, en birtist þá í „Rétti”, 1. hefti 1954
ásamt grein um „Island og Guatemala” eftir
Asgrím Albertsson. Juan José Alevalo, sem
var forseti landsins frá stríðslokum til 1951,
er Arbenz tók við, hefur ritað bókina „Há-
karlinn og sardínurnar" einmitt um meðferð
Bandaríkjaauðvaldsins á löndum eins og
Guatemala og Nicaragua. Hún kom út hjá
„Máli og menningu” 1962.
25