Réttur - 01.01.1975, Síða 27
en sterku og voldugu, sem hann enn hefur
tekið á sig í heimi vorum.
RÓSA LUXEMBURG
Komi einhver með þá athugasemd enn á
þessu ári að konur ættu ekki að vera í broddi
fylkingar í baráttu flokka og máske síst að
fást við hugmyndafræði og hagfræði, — og
slíkir hleypidómar vaða enn upp jafnvel í
röðum sósíalista — þá afsannar enginn mað-
ur slíka staðhæfingu betur en Rósa Luxem-
burg með öllu lífi sínu og starfi.
Þessi kona var næst Lenín, einn af sjálf-
stæðustu og skörpustu hugsuðum marxism-
ans í Evrópu á þessari öld, hliðstæð mönnum
eins og Gramsci. Hún var einhver besti og
framsýnasti foringi, sem þýsk verklýðshreyf-
ing hefur eignast á þessum tíma. Rit hennar
um stjórnlist byltingarinnar eru meðal hinna
merkustu í þeirri grein. En einmitt um hag-
fræðina fjalla stærsm heildarrit hennar, sjálf-
stæðar rannsóknir á þróun auðmagnsins:
1) Doktorsritgerð hennar við háskólann í
Ziirich 1898 var um iðnþróun Póllands,
2) Die Akkumulation des Kapitals" var hið
mikla rit hennar um þróun auðmagnsins eftir
daga Marx aðallega, gefið út í Berlín 1913
og ',) „Einfuhrung in die Nationalökonomie"
voru margir fyrirlestrar, er hún hélt í flokks-
skóla til að skýra fyrir flokksmönnum hag-
fræðina og hagþróunina frá marxistisku sjón-
armiði. — Skyldi svo einhver halda að slík
kona, er þannig ritaði og barðist hefði
lítið af þeim „kvenlegu" eiginleikum, sem
ýmsir karlmenn fyrst og fremst vilja eigna
konum, þá ættu viðkomandi að lesa bréf
hennar úr fangelsinu til Sonju Liebknecht
(1916—18). Það mun vart nokkur hafa tjáð
sig á fegurri og blíðari hátt en þessi „kven-
hetja" gerir í þeim bréfum, konan, sem þeir
er ekki þekkja mundu ella tileinka eiginleika
„valkyrjunnar."
Þessi rismikli persónuleiki, máske ein
fremsta kona veraldarsögunnar, var myrt 47
ára að aldri af þýskum liðsforingjum í skjóli
sósíaldemokratiskrar ríkisstjórnar að undirlagi
háttsettra herforingja, er borguðu morðingj-
um vel og sáu um að þeim yrði aldrei hegnt,
— slíkt var Weimarlýðveldið.
Rósa Luxemburg skrifaði ekki mikið um
27