Réttur - 01.01.1975, Blaðsíða 36
„Blóðsunnudagurinn" í Pétursborg. Málverk eftir W. Kossak.
— Senn verður þér, kirkja og keisaravald,
þín kúgun að glötun og tíunda-gjald,
og heitur þinn helvítis-eldur.
Því hið stráfellda lið
er hið sterkasta lið!
Er hugsjónir hlauþa tmdir vigur
gegn heimsku, sem lífsvonir brœlir og ir.
— Hver hirðir hvor hníga skal fyr?
Sönn hetja um máls-efnið spyr,
en síður um sig.
Og sökum þess hnn ykkur heiðurinn á!
Sem hnígandi vöktuð upp menningar-þrá
þungsvœfu þjóð ykkar hjá.
Sem báruð til hamingju, að hníga við svörð
og helga með blóði jafn fordœmda jörð
og höfuðból harðstjórnar andans,
og hjátrúar fjandans.
Þvi sú kemur öld — hún er aðgætnum vís,
þó ártalið finnist ei hvenær hún rís —
að mannvit og góðvild á guðrækni manns,
að göfugleiks framför er eilífðin hans,
að frelsarinn eini er líf hans og lið
sem lagt er án tollheimtu þjóðheillir við,
og alheimur andlega bandið,
og ættjörðin heilaga landið!
Þá vitjar hann moldanna, hún eða hann!
Sá heimur spyr engan um kyn, bara mann!
]afn tign verður tjaldbúð og stofan!
Við líkreitinn þar sem þið liggið í ró
hann leysir af fótum sér volkaða skó,
við torfdysin tekur hann ofan.
1905.
36