Réttur - 01.01.1975, Page 53
„Hann hefur heilan heim að vinna.“ — Verkalýðurinn byrjar að brjóta fjötrana. (Táknmynd utan á tímariti
Alþjóðasambands kommúnista forðum daga).
Ég talaði um marxískan flokk og á ég þá ekki
síst við, að hann kunni ævinlega sem best sk I á
því, hvernig snúast beri við vandanum á hverjum
tíma, einnig óvæntum vanda. Stirðni hann i kenni-
setningum án tengsla við verulelka hvers tima, er
hann ekki marxískur lengur.
Fyrsta skilyrðið, sem ég nefndi var um styrk-
leikahlutföllinn i heiminum. Um það segir svo i
Leið Islands til sósialismans: „Styrkleikahlutföllin
í heim num eru nú þegar með þeim hætti, að telja
má að fyrsta skilyrðinu sé fullnægt og i æ rikara
mæli með hverju árinu, sem líður."
Ef með þessu er átt við, að við höfum eitthvert
öryggi fyrir þvi, að stjórn sem framkvæmi sósialska
umþyltingu á Islandi, yrði lát'n í friði, þannig að
ekki kæmi 11 erlendrar ihlutunar, þá er hér að
minum dómi of mikið sagt. Jafnvel þótt við hefðum
losað okkur við herstöðina og skilið v ð NATO,
má búast við þvi, að íslensk auðmannastétt tryggði
sér stuðning erlendis frá, til þess að ná aftur
völdunum með ofbeldi og léti nú allt sitt tal um
lýðræði sigla s nn sjó, meðan hún hefði nokkra
von, hversu tvisýn sem hún væri. Að sjálfsögðu
verða íslenskir sósíalistar að vera við því búnir að
tryggja það i tíma, að unnt verði að kæfa slíkar
gagnbyltingartilraunir í fæðingunni. Hitt er rétt, að
53