Réttur - 01.01.1975, Side 59
KÍNA
Um miðjan janúar 1975 var haldið í Pek-
ing fjórða allsherjarþing Alþýðulýðveldisins
Kína. Voru þar einróma samþykktar ákvarð-
anir um stefnu ríkisins. Chou-En-lai flutti
þar aðalskýrslu stjórnarinnar og var hann
áfram kjörinn forsætisráðherra. Hann lauk
ræðu sinni með þessum orðum:
„Kínverska þjóðin hefnr — undir forustu
miðstjórnar flokksins, sem Mao formaður
stýrir, — unnið af kappi, sigrast á öllum
erfiðleikum og hcettum, og á rúmlega tuttugu
árum hreytt bláfátœku og frumstceðu landi
í sósíalistiskt land, þar sem grundvöllur er
lagður að velmegun. Við getum áreiðanlega
gert Kína að voldugu, nýtísku sósíalistísku
landi á öðrum tuttugu árum eða áður en
þessi öld er öll. Við skulum halda áfram að
vinna af kappi, auka ávinningana og sigrast
á erfiðleikunum, gœta hófs og stillingar, vera
á verði gagnvart hroka og óðagoti, halda
áfram á sigurbrautinni. Látum oss sameinast
í tákni byltingarstefnu Mao formanns til að
vinna enn meiri sigraf'
Tímaritið „Time" metur þetta þing sem
sigur raunsærrar stefnu sem Chou-En-lai sé
fyrst og fremst fulltrúi fyrir. Bendir tímaritið
m.a. á að Teng-Hsiao-ping, sem var aðal-
ritari flokksins fyrir „menningarbyltinguna,"
en þá settur frá, sé nú orðinn bæði varafor-
maður flokksins og varaforsætisráðherra, en
þeir eru sex hver um sig. „Time" segir m.a.
þann 3. febrúar:
Chou-En-lai
„Það er réttlátt og sanngjarnt að fela
gömlu byltingarmönnunum aftur forusruna.
Þegár öllu er á botninn hvolft, þá eru það
þeir, sem hafa sameinað fjórðung mannkyns
í stórfenglegustu stjórnmálahreyfingu sög-
unnar. Það eru þeir, sem breyttu kínversku
þjóðfélagi úr herjuðu, stríðsþreyttu, sundruðu
mannfélagi í rústum í mikið — brátt vold-
ugt — heimsveldi, sem nú þegar er bæði
meðlimur kjarnorkuklúbbsins og olíuútflytj-
59