Réttur - 01.01.1975, Blaðsíða 72
DIE RIESENKINDER
Umsatze der IG Farbenindustrie AG
und ihrer drei groOen Nachfolger (in Milliarden Mark)
Nadi 1945 ordostBi tbe áte EwíletíittmB úu I G farben an
D» mwtsn weaWeutsctwn ProtWtttonsstatten wurdan auf drei
NatWoigeaeseilsctiatlan Uö*rtra9«n
Batfische Anttm- & Soda-Fabnk AG, ludwtgshafea
Farbwerke Hoscfut AÖ.Frankfurt,
und farbenlabnken Bayer AG, LavarkuMn.
BASF
I G FARBEN
1926 30 36 40 44
.....d^. .'.R
I Ln
„Jötunbörnin" heitir þessi mynd í „Spiegal11. Hún sýnir gamla auðhringinn IGF og
veltu hans á árunum 1926 til 1944 og svo til samanburðar veltu „jötunbarnanna" árið
1973 i miljörðum marka.
FJÖLÞJÓÐAHRINGARNIR
NOKKRAR STAÐREYNDIR
Það er oft rætt um auðhringa hér í „Rétti"
og ekki síst fjölþjóðahringa upp á síðkastið,
þetta fyrirbrigði að sami auðhringurinn hafi
aðsetur sitt í mörgum löndum, sé engri sér-
stakri þjóð bundinn og geti því hagað allri
starfsemi sinni án þess að taka tillit til laga-
boða einnar þjóðar, geti flutt starfsemi sína
tafarlaust til annarar, ef honum þóknast, o.
s. frv. Sumir álíta talið um auðhringa áróður
einn af hálfu sósíalista, einskonar grýlur til
að hræða menn á, en því fer fjarri. Því skulu
hér birtar nokkrar tölur úr viðskiptaheim-
inum til þess að sýna hve ægilegt vald þess-
ara auðhringa er orðið.
Það er rétt til að byrja með að minna á
að í stríðslokin síðustu ákváðu Bandamenn
að leysa upp auðhringana þýsku, sem komið
höfðu Hitler til vanda og ábyrgir voru m.a.
fyrir múgmorðum nasistanna. Meðal þeirra
hringa, er þá var skipt upp í þrjá smærri var
efnafræðihringurinn I.G.F. (Interessen-
Gemeinschaft-Farbenindustrie), er m.a. lagði
til eiturgasið í gasklefa þá, sem notaðir voru
í dauðabúðunum í Auswitz og annarsstaðar.
Var honum skipt upp í þrjú félög: BASF
(Badische Anilin- und Soda-Fabrik A.G.),
Farbwerke Höchst A.G. og Farbenfabriken
Bayern AS. — Aðal framleiðsla þessara fyrir-
72