Réttur - 01.01.1975, Síða 76
„I nafni lýðræðisins“
„Fagnaðarboðskapurinn, sem
Bandarikin flytja sjálfum sér og
heiminum, er letraður i loforðum
sjálfstæðisyfirlýsingarinnar um
jöfnuð og frelsi fyrir alla. Án
þessa loforðs væru eins og Lin-
coln skýrast sá, engin Bandariki
til. Sá maður og sú hreyfing, sem
ætlaði með einræðisráðstöfunum
að verða herra Bandarikjanna,
hafa því aðeins möguleika á að
láta slíkt heppnast, að þau geri
það í nafni lýðræðisins."
Hans Morgenthau í „Spiegel",
(ritgerð e'nkennd sem
„Essay") 27. 1. 1975.
Til hægri við .. . .
Fundur var sem oftar I ríkis-
stjórn Bandaríkjanna sl. vor. Rich-
ard Nixon, þáverandi forseti, seg-
ir, þegar ,,bréf“ Solshenitsyn til
„sovétleiðtoganna" ber á góma:
„Solshenitsyn er hægra megin við
Barry Goldwater". Henry Kissing-
er svarar: „Nei, herra forseti,
hann er hægra megin við keisar-
ana (,,zar"ana)."
Endursagt úr frásögn í
„Newsweek" 18. mars 1974.
Hungrið í þriðja heiminum
— eyðileggingin í auðvaldsheiminum
Tvær myndir frá árinu 1974:
Annarsvegar gryfja, þar sem kálf-
um er kastað í, sem drepn r hafa
verið af eigendum sínum, bænd-
um í Bandaríkjunum, nánar tiltekið
i Wisconsin. Voru bændur að mót-
mæla verðlagsstefnu ríkisstjórnar-
innar. — Hinsvegar mynd af lítilli
stúlku með tóma skál í mögrum
höndum, sjaldan fyllt. í 3ja heim-
inum I fa 2500 miljónir jarðarbúa,
500 milj. af þeim þjást af hungri.
Það deyja um 10 miljónir manna
árlega úr hungri eða matarskorti.
I ýmsum auðvaldslöndum er
matur eyðilagður í stórum stíl,
einkum hveiti. Aðe ns i Vestur-
Þýskalandi voru á þrem árum yfir
3 miljónir smálesta af hveiti gerð-
ar ónothæfar til matar, en hefði
dugað upp undir 50 m Ijónum
manna heilt ár sem brauð.
í nafni frelsisins
„Svo virðist sem forsjónin hafi
ætlað Bandarikjunum það hlut-
verk að níðast á Ameríku í nafni
frelsisins."
Simon Bolivar, frelsishetja
Suður-Ameríku, 1826.
w
NEISTAR
76