Réttur


Réttur - 01.10.1975, Side 3

Réttur - 01.10.1975, Side 3
DAGUR VAKNINGAR 24. október 1975 mun marka tímamót í sögunni af jafnréttis- og frelsisbaráttu vinnandi kvenna á Islandi. Þær sýndu þann dag mátt sinn og vilja, þær sönnuðu með fjöida- hreyfingu og fjöldafundum, sem eru að heita má einsdæmi í ísienskri baráttusögu, að þær væru eigi aðeins jafnokar karlmanna i því að kveða upp herör til styrktar málstað sinum, heldur gerðu það með slíkum stórhug, hrifningu og festu að leita verður langt til baka — allt til hinna voldugu sögulegu átaka íslenskrar verkalýðshreyfingar til að finna samjöfnuð. Eftir þennan dag munu vinnandi konur ekki sætta sig við neitt minna en jafnræði í þjóðfélaginu, byrja með því að knýja það fram í hinum pólitísku samtökum og flokk- um og eigi linna uns þjóðfélaginu hefur fyrir tilstilli þessara samtaka verið breytt svo að hugsjónir þessa dags og þessarar hreyfingar verði orðnar veruleiki. DAGURINN í REYKJAVÍK Dagurinn hafði verið undirbúinn urn allt land. Allstaðar var sem öfl leystust úr læð- ingi. Nýir kraftar komu fram, unnu og héldu ræður í fyrsta sinn. Víðfeðma samstarf komst víðast hvar á. 211

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.