Réttur


Réttur - 01.10.1975, Síða 17

Réttur - 01.10.1975, Síða 17
lengur út. Ný verkefni höfðu nú hlaðist á brautryðjendurna, Hallfríður hafði ásamt fleirum stofnað Mæðrafélagið, flokkurinn réðst nú í það mikla átak að gefa út dagblað: Þjóðviljann, starfsemin á nýjum sviðum og í nýjum formum kröfðust allra krafta flokks- manna. „Nýja konan" hafði látið lítið yfir sér, taldi sig blað en ekki tímarit, þó hún væri hið síðarnefnda. En þótt formið væri fátæklegt og frumstætt að hætti þessa tímabils, þá var hjarta þeirra, er boðskapinn fluttu, heitt og hvatningin til alþýðu, er hljómaði þar á hverri síðu, átti sinn þátt í þeim sigrum, er bráðlega unnust. II. „MELKORKA” Níu árum síðar, tæpum áratug eftir að K.F.I. hafði hafið rismikla og sigursæla sam- fylkingarbaráttu sína hófu sósíalistískar kon- ur að nýju útgáfu tímarits, er flytja skyldi boðskap sósíalisma og þjóðfrelsisbaráttu fyrst og fremst til kvenþjóðarinnar. Aðstæður voru nú allar breyttar: Islensk- ur verkalýður hafði 1942 risið upp og sigr- ast á þrælalögum „þjóðstjórnarinnar", bylt lífskjörum sínum, þurrkað burt sárustu fá- tæktina, beitt jöfnum höndum faglegu sem pólitísku valdi sínu, kennt burgeisastéttinni að virða mátt alþýðunnar og skilja hverjum skorðum hennar eigin ríkisvaldi væru settar. Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalista- flokkurinn, var orðinn hin viðurkenna for- ustusveit alþýðu í frelsisbaráttu hennar, flemtri hafði slegið á borgaraflokkana við sigurför þá, en á sviði bókmennta og lista hafði hin sókndjarfa, rismikla sveit sósíalískra skálda sigrast á harðvítugum árásum ofstækis- fulls afturhalds og litað Island andans rautt. Bókmenntafélagið „Mál og menning" var orðið stórveldi á útgáfusviðinu og íslensk þjóð stefndi stolt og einhuga að stofnun lýðveldis. Það tímarit kvenna ,er nú hóf göngu sína, var fagurt að frágangi, heft að tímarita sið, stærð 1. heftis var 34 síður. Það hlaut nafn- ið „Melkorka" og kápumynd, táknræn fyrir nafnið prýddi forsíðu þess. Ritnefnd skipuðu: Þóra Vigfúsdóttir, Valgerður Briem og Petrína Jakobsson. Og ritstjóri var Rannveig Kristjánsdóttir, 27 ára gömul glæsileg kona, gædd brennandi áhuga. Rannveig var fædd 17. mai 1917 á Dagverðar- eyri við Eyjafjörð. Foreldrar hennar voru Sesselja Eggertsdóttir og Kristján Sigurðsson kennari þar. Hún útskrifaðist úr Menntaskólanum á Akureyri 1938 og nam siðan fyrst við háskólann i Kaup- mannahöfn, en síðan lagði hún stund á matreiðslu- námskeið og húsmæðrakennarafræðslu í Svíþjóð og tók fullnaðarpróf I þeim greinum. Árið 1942 kom hún heim og gerðist matreiðslukennari við Hús- mæðraskóla Reykjavíkur. Rannveig var um skeið ritstjóri kvennasiðu Þjóðviljans, flutti ótal útvarps- erindi og fyrirlestra, vann í mörgum félagssam- tökum, er studdu réttindamál kvenna, varð ráðu- nautur hjá Kvennfélagasambandi Islands og síðar námsstjóri húsmæðraskólanna af hálfu ríkisins. 1947 giftist Rannveig Pétri Hallberg og flytur með honum til Svíþjóðar. Vann hún þar m.a. með manni sinum mikið starf að því að kynna Svium rit Hall- dórs Laxness. Þar andaðist hún 14. september 1952 aðeins 35 ára að aldri. „Melkorka" hófst á ávarpi hias unga rit- stjóra: „Sól er á loft komin". Kemur þar fyrst tilvitnun í Laxdælu þá Melkorka talar við son sinn. Síðan segir svo: „Islenskar konurl Þögn okkar hefur verið þrálát og löng eins og þögn Melkorku, og sjaldan rofin 225

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.