Réttur - 01.10.1975, Side 26
togar Chile svo sem: Luh Corvalan, Gustavo
Ruz, Laura Allende, Anibal Palma, Fern-
ando Flores og fleiri.
Luiz Corvalán') formaður Kommúnista-
flokks Chile, er alveg sérstaklega í mikilli
hættu vegna þess hve herforingjaklíkan hatar
hann. Talið er að hún láti smátt og smátt
eitra þann mat, er hann fær, til þess að eyði-
leggja heilsu hans. Einnig er hætta á að hún
reyni að búa til tylliástæðu til þess að drepa
hann, svo sem nú er hún þykist hafa upp-
götvað samsæri kommúnista um að drepa
Pinochet, blóðhundinn, er stjórnaði valda-
ráninu og ræður nú Chile. Það er vitað að
aðeins mótmæli alþýðunnar víða um heim
hafa hindrað það að fasistastjórnin tæki Luiz
Corvalan af lífi.
Hinsvegar er vitanlegt að óánægjan vex
í sífellu í Chile, því lífskjör almennings hrað-
versna þar, verðbólga vex um 400—600%
á ári, þjóðarframleiðslan var 1974 um 20%
minni en 1972. Fyrir lágmarkskaup fengust
í september 1973 22 kíló af brauði, en í
nóvember 1974 9,2 kíló. Og atvinnuleysið er
haustið 1975 orðið þannig að 18% vinnu-
færra manna gengur atvinnulaus.
En alþjóðahringarnir hafa náð tökum sín-
um aftur á auðæfum Chile.
V.
Þannig má rekja áfram um jarðarkringl-
una: hvar sem fasistiskir herforingjar eða
sótsvart afturhald rænir völdum, nýtur það
vináttu og verndar Bandaríkjanna, ef ríkis-
stjórn þessa „forusturíkis lýðræðisins'' hefur
ekki beint eða óbeint stutt að valdaráni við-
komandi.
Brasilía, Uruguay, Indónesía, Suður-Afríka,
Suður-Kórea svo nokkur harðstjórnar- og
fangabúða-lönd fasismans séu nefnd. Og þeg-
ar fasistastjórnir falla, eins og í Grikklandi,
þá er það eitt af því fyrsta, sem sannast,
Renato Guttuso:
Aftaka. — Til minningar um Garcia Lorca 1938.
hvernig Bandaríkjastjórn beinlínis skipulagði
valdarán grísku herforingjanna 1967.r,)
Til þess að vinna öll þau níðingsverk, sem
þurfti til þess að koma þessum blóðugu harð-
stjórnum á eða viðhalda þeim hefur Banda-
ríkin aldrei skort þýlynda þjóna, er gagnvart
alþýðu komu fram með ofstæki harðstjórans.
VI.
Og hvað með þýlyndi gagnvart þessum
herrum og harðstjórum og yfirboðurum
þeirra hér heima?
Ekki skorti hólið um Franco, er hann hóf
uppreisn sína gegn lýðræðisstjórn Spánar
1936. Fasistar hans hétu „þjóðernissinnar" á
máli Morgunblaðsins og lýðveldisherinn, það
voru bara „rauðliðar".
Þegar fasisminn ríkti í Grikklandi, hét það
234