Réttur


Réttur - 01.10.1975, Page 28

Réttur - 01.10.1975, Page 28
SERGIO ORTEGA: SAMEINAÐ FÓLK VERÐUR ALDREI SIGRAÐ QUILAPAYÚN er söngflokkur frá Chile sem hefur verið útlægur frá föðurlandi sínu síðan herforingjarnir frömdu valdaránið 1973. Hann hefur sungið inn á margar plötur m.a. ,,EI pueblo unido jamás será vencido". Á fætur syngjum, við sem ætlum að sigra þegar fánar einingarinnar sækja fram og þú kemur með mér. Og þannig muntu sjá söng þinn og fána blómgast og Ijós morgunroðans boða hið komandi líf. Á fætur berjumst, fólkið ætlar að sigra. Hið komandi líf verður betra. Til að ná gleði okkar gera þúsundir þarátturadda uppreisn og munu syngja söng frelsisins. Með ákvörðun: Föðurlandið mun sigra. Það fólk sem gerir uppreisn í þaráttunni hrópar nú með gríðarrödd: ÁFRAM. „Sameinað fólk verður aldrei sigrað". Föðurlandið er að sameinast, frá norðri til suðurs er vígbúist, frá brennheitu salti og steinum að suðlægum skógum fara þeir til vinnu, sameinaðir í baráttunni. Spor þeirra hylja þegar ættjörðina og boða framtíðina. Á fætur syngjum, við fólkið sem ætlar að sigra. Milljónir manna innleiða þegar sannleikann, úr stáli eru þeir. Orrustan er eldheit. Hendur þeirra koma færandi réttlætið og rökin. Kona, með eld og hugrekki ertu hér þegar með verkamanninum. Og það fólk sem gerir uppreisn í baráttunni hrópar nú með gríðarrödd: ÁFRAM. ,,SAMEINAÐ FÖLK VERÐUR ALDREI SIGRAÐ." Erla Sigurðardóttir þýddi. 236

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.