Réttur - 01.10.1975, Side 44
*
Utþurrkun vestrænnar
menningar?
Ótti bandarískra kjarnorkufræðinga
„Haukarnir" í Bandaríkjunum, hinir
herskáu fulltrúar „stóriðju- og hernaðar-
klikunnar“, búa sig í kjarnorkusyrjöld án
tillits til þeirra ægilegu afieiðinga, sem
hún hefur, og án þess að skeyta hið
minnsta um aðvaranir vísindamanna, er
betur vita en þeir.
James Schlesinger, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna þar til nú í nóvembyrjun
lýsti yfir því í maí sl. vor að ef andstæðing-
ur hæfi stríð með venjulegum vopnum,
myndu Bandaríkin ekki hika við að svara
með „taktískum" kjarnavopnum.
Mánuði síðar bætti hann því við slíka yfir-
lýsingu að ef bandamaður stæði frammi fyrir
ósigri þá „væri ekki útilokað að veita Sov-
étríkjunum hörð högg með „strategiskum"
kjarnorkuvopnum". Starfsbróðir hans í Vest-
ur-Þýskalandi, Georg Leher, endurtók svip-
aða hótun nokkru síðar.
Kjarnorkuvísindamaðurinn bandaríski
Sidney Drell gagnrýndi frammi fyrir nefnd
öldungadeildarinnar þessa afstöðu og sagði:
„Það lítur út fyrir að Bandaríkin hafi ákveð-
ið að gera kjarnorkustríð að raunverulegri að-
ferð í utanríkispólitík sinni."
Fred Ikle, forstjóri bandarísku afvopnun-
arstofnunarinnar kvað „nýja kynslóð her-
fræðinga líta fram hjá áhættum atom-stríðs
og gera lítið úr afleiðingum þess." Það er
Ijóst að herforingjar reyna að eyðileggja í
raun árangur af „Salt"-viðræðum Bandaríkj-
252