Réttur


Réttur - 01.10.1975, Page 46

Réttur - 01.10.1975, Page 46
Dubcek og Smrkovsky hafa orðið Það eru liðin sjö ár síðan ríkisvaldi Sovét- ríkjanna í formi hers þeirra var beitt gegn Kommúnistaflokki Tékkóslóvakíuþ'' til þess með innrás og hernámi landsins að setja lög- lega stjórn flckksins og þjóðarinnar frá völd- um og koma öðrum að, sem innrásaraðilinn hafði velþóknun á. Þetta var verknaður, sem góðir kommún- istar fyrirverða sig fyrir að kommúnistiskir valdamenn skuli hafa getað framið. Innrásin í T'ékkóslóvakíu verður svartur blettur í sögu sósíalismans, sem vonandi verður þveg- inn af fyrr en síðar. Baráttan fyrir sjálfstœðri og þjóðlegri, lýðrœðislegri framkvæmd sósí- alismans þar í landi er háð áfram, þótt svo hálf miljón kommúnista hafi verið reknir úr flokknum, til þess að tryggja ofstcekisöflun- um völd. Hér skulu birt á eftir þrjú skjöl um viðleitni foringja flokksins frá 1968 að bæta ástandið, fyrst bréf Dubceks til Sambands- þings Tékkóslóvakíu, dags. 28. okt. 1974, síðan bréf Smrkovsky^ til Bresnefs 1973, alltaf þó aðeins litlir partar og úr því þriðja nokkrar setningar, en það er úr svari Dub- ceks til Husaks. Auðvaldssinnar þykjast stundum harma örlög Tékkóslóvakíu. Það skortir aldrei hrcesnina og lýðskrumið hjá þeim herrum, ef þeir halda sig geta grcett á glappaskotum eða glcepum, er kommúnistar drýgja. Auð- mannastéttirnar höfðu með blóðugum inn- rásarstyrjöldum lagt undir sig meir en hálf- an heiminn, arðrcent og pínt þann meirihluta mannkyns, er þar bjó, — og stofnað svo til tveggja heimsstyrjalda, er kostuðu miljóna- tugi manna lífið, til að berjast um bráðina sín á milli:"1 Og þegar þessar þjáðu þjóðir rísa upp, til að varpa af sér okinu og öðlast sjálfstceði, þá skirrast þessar „háþróuðu menningarþjóðir" ekki við að beita sínum eitruðustu og banvœnustu vopnum til að reyna að berja frelsisbaráttu þeirra niður, svo sem Bandaríkjamenn gerðu í Vietnam. — Slíkum ferst vissulega ekki að tala um frelsi eða fella (krókódíls-) tár. Hér fara bréf tékknesku kommúnistaleið- toganna á eftir í útdráttum: BRÉF DUBCEKS Hinn 28. október 1974 ritaði Alexander Dubcek Sambandsþingi Tékkóslóvakiska lýðveldisins og Þjóðarráði Slóvakiu ýtarlegt bréf. Hefst það á því að vísa til fyrri bréfa höfundar um það hvernig innanrikisráðuneytið láti starfsmenn sína takmarka frelsi hans og hafa stöðugt eftirlit með honum og fjölskyldu hans. Um ástæðurnar fyrir því, að hann riti enn á ný, segir Dubcek svo orðrétt: „Höfuðástæðan til þess að ég skrifa þetta bréf er sú, að sósíalískt lýðræði og lögbundið skipulag eru troðin undir fótum. Gagnstætt stjórnarskránni 254

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.