Réttur - 01.10.1975, Blaðsíða 57
INNLEND □n
VÍÐSJÁ □ J
FLOKKSRÁÐSFUNDUR
ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Flokksstjórnarfundur Alþýðubandalagsins
var haldinn í Kópavogi dagana 14—16. nóv.
s.l. Fundinn sóttu 113 aðalfulltrúar frá 38
Alþýðubandalagsfélögum í öllum kjördæm-
um landsins.
Aðalmál fundarins voru efnahags- og
kjaramál, en einnig voru gerðar ályktanir um
jafnréttismál, sjálfstæðismál og ítarleg álykt-
un um flokksstarfið. I stjórnmálaályktun
fundarins sem birtist í Þjóðviljanum þriðju-
daginn 18. nóv. segir m.a.:
„Stefna ríkisstjórnarinnar í efnahagsmál-
um hefur reynst röng og hættuleg þjóðarbú-
inu. Hún er meginorsök hinnar miklu dýrtíð-
ar, sem afmr hefur leitt til ókyrrðar á vinnu-
markaði, beinna framleiðslustöðvana og
minnkandi þjóðarframleiðslu,, . . .
„Ráðstafanir ríkisstjórnarinnar hafa aukið
á vandann og gert hann torleystari en áður
var.
Þjóðin þarf að fá tækifæri til að kveða
upp sinn dóm yfir þessari ríkisstjórn." . . .
„I stað þess að miða allar efnahagsaðgerðir
við að lækka laun og auka gróða og velta
efnahagsvandanum þannig yfir á herðar
launafólks, verður að taka upp stefnu skipu-
lagshyggju, enda er gróðahvötin ekki for-
senda efnahagslegra framfara.
Þjóðin þarf að losna sem fyrst við þessa
ríkisstjórn. Pólitísk og fagleg samtök launa-
fólks þurfa að beita sér fyrir myndun ríkis-
stjórnar, sem hafi það markmið að stjórna
Islandi í þágu almennings og að vinna að
lausn þess vanda á sviði efnahags- og at-
vinnumála, sem nú steðjar að þjóðinni og
stefnir okkar þjóðarbúskap í alvarlega hætm
innan fárra ára, ef ekki verður að gert."
A flokksráðsfundinum var einnig sérstak-
lega fjallað um það alvarlega ástand er skap-
ast hefði vegna linkindar íslenskra ráða-
manna gagnvart erlendu valdi er skýrast
kæmi fram í meðferð landhelgismálsins. I
niðurlagi ályktunar um sjálfstæðismálin segir
ir m. a.:
„Samskipti núverandi ráðamanna við er-
lent vald hafa í ríkum mæli einkennst af ó-
sjálfstæði og undirlægjuhætti. Hvergi gætir
þess átakanlegar en í meðferð landhelgis-
málsins. Segja má að þetta stórmál hafi nú
um tveggja áramga skeið verið prófsteinn á
það, hver sé raunverulegur sjálfstæðisvilji og
þjóðleg reisn íslenskra stjórnmálamanna og
flokka. Ferill ríkisstjórnar Geirs Hallgríms-
sonar í því máli er næsta dapurlegur og þjóð-
in slegin ugg. A sama tíma og skýrslur vís-
indamanna sanna, að svo nærri hefur verið
gengið fiskistofnunum, að ekkert er lengur
til skipta á Islandsmiðum, stendur ríkisstjórn-
in í samningamakki við breta og vestur-þjóð-
verja, þær tvær þjóðir, sem ýmist hafa beitt
okkur viðskiptaþvingunum eða beinu hern-
aðarofbeldi. Fólkið í landinu hefur með
fjölda samþykkta varað eindregið við undan-
slætti og samningum og sýnt á því fullan
265