Réttur


Réttur - 01.10.1975, Page 63

Réttur - 01.10.1975, Page 63
sem unnið hafa fyrir Holden: John Mark- ham, Charles Dorkins, B. Manbertz og M. Miiller, sem áður var í þjónustu hins ill- ræmda Tshombe. — Það er því ekki að undra þótt FNLA berjist fyrir því að vest- rænir olíuhringar fái að starfa í Angola! A bak við UNITA-hreyfinguna, sem klauf sig út úr MPLA fyrir nokkrum árum, standa aðallega auðmenn í Suður-Afríku svo og gamlir nýlendukúgarar úr Portúgal. Það er því sótt að þjóðfrelsishreyfingu Angola bæði að norðan og sunnan að undir- lagi auðhringa og bandamanna þeirra. Þjóðfrelsishreyfing Angola MPLA verður því nú að heyja harða frelsisbaráttu til þess að hindra að nýir nýlendukúgarar komi í stað þeirra portúgölsku. STÓR-KAUPMENN DAUÐANS Vopnaframleiðsla hefur ætíð verið gróða- vænlegasta fyrirtæki auðhringanna. Henni fleygir fram nú. Bandarísku auðfélögin eru þar auðvitað í broddi fylkingar: A fjárhagsárinu 1975 (júlí—júní) seldu þeir út úr landi vopn fyrir 9,5 miljarða doll- ara. 1973 var þessi vopnaútflutningur „að- eins” 3,9 miljarðar dollara og vopnaverslun alls heimsins 9-2 miljarðar dollarar (1970: 5.8 miljarðar). Verslunin með dauðann vex því uggvænlega hratt. Vopnasala bandarísku hringanna út úr landi er orðin tíundi hluti alls útflutningsins, t.d. tvöföld upphæð hveiti- útflutningsins. Stærsm vopnakaupendurnir eru „þróunar- löndin". Þrjú þeirra: Iran, Kuweit og Saudi- Arabía keyptu helminginn af vopnaútflutn- ingi Bandaríkjanna. Iran samdi 1974 um vopn fyrir 3,4 miljarða dollara í Bandaríkj- unum, Saudi-Arabía ætlar að nota 25 milj- arða dollara til hergagnakaupa fram til árs- ins 1980. Samkvæmt fjárlögum Bandaríkjanna eru 90 miljarðar dollara áætlaðir til hernaðar- þarfa. Á síðasta áratug fluttu amerískir vopnahringar „aðeins" 5% framleiðslunnar út. Nú hefur þetta vaxið svona gífurlega — og bætir verslunarjöfnuðinn(l). Frakkland var þriðja mesta vopnaútflutn- ingslandið 1974. Flutti út vopn fyrir 3 milj- ara dollara. (Sovétríkin voru önnur í röðinni með 5.5 miljarða dollara, Bandaríkin þá með 8.3 miljarða dollara). Hefur vopnaútflutn- ingur Frakka fjórfaldast frá ca. 1965 til 1972 og tvöfaldast síðan. Nú hafa franskir vopna- salar pantanir, er nema 5 miljörðum dollara. Við vopnaiðnaðinn vinna 270.000 manns, meira en við nokkurn annan iðnað. — 8% alls útflutnings Frakka eru vopn. Vopnasalan er að verða ein af undirstöð- um atvinnulífs helstu auðvaldslandanna. Næst Frakklandi um vopnaútflutning er Bretland (1974: 1.5 miljarðar dollara), þar- næst Italía (240 miljónir dollara). Hið forna stórveldi vopnaframleiðslunnar, Vestur- Þýskaland, er aðeins með 100 miljónir doll- ara útflutning, 0,3% útflutningsins. Blóð- sporin fornu hræða enn sósíaldemókratíska stjórnmálaleiðtoga Þýskalands, en hve lengi verður slæm samviska vegna fyrri illverka þýskra valdhafa látin hindra gróðavænlega „vörusölu", þegar vönustu vopnaframleið- endur heims taka að þrýsti á — og benda m.a. á eina miljón atvinnulausra verkamanna og kreppu á flestum öðrum sviðum en undir- búningi manndrápsiðjunnar. Gróðahyggjan, hreyfiafl auðvaldssfram- leiðslunnar, magnar nú stóriðju manndráps- tækjanna. Enn er hinn illi andi í flöskunni, en það er aðeins tímaspursmál, hvenær hann sleppur út, stríðin byrja — og hvar. — Þess skal getið að sumt af þessári iðju kalla auð- valdslöndin „þróunarhjálp". 271

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.