Réttur - 01.04.1987, Síða 23
PÁLL BERGÞÓRSSON:
Samvinnuhreyfingin
á villigötum
Kaffíbaunamálið hefur valdið samvinnuhreyfíngunni verulegum álitshnekki.
En þad er þó ekki nema hluti af miklu stærra máli. Allt skipulag Sambandsins er
þess eðlis, að það er samvinnustefnu fjötur um fót.
Neytendakaupfélögin og
Sambandið
Eitt meginhlutverk Sambandsins ætti
að vera að útvega neytendakaupfélögum
í landinu ódýrar og góðar vörur. Þar hef-
ur það ekki staðið nógu vel í stykkinu.
Það er reynslan í KRON, að skipti við
Sambandið hafa alls ekki verið sérlega
hagkvæm, auk þess sem oft hefur verið
lítið skeytt um að hafa nægar vörur á
boðstólum. Afleiðingin verður sú, að
kaupfélögin standa sig ekki nógu vel í
samkeppninni um vörusölu. Fyrir því eru
að vísu ýmsar aðrar orsakir í fámennum
byggðarlögum, en í þéttbýlinu dugar sú
skýring ekki. Af þessu leiðir svo aftur, að
salan verður dræmari en ella, kaupfélögin
reynast ekki sú auglýsing fyrir samvinnu-
stefnuna sem þau ættu að geta orðið. En
það er ekki nóg með það. Sjálft Sam-
bandið líður líka fyrir þetta. Velta versl-
unardeildar stórminnkar fyrir bragðið.
Auk þess getur deildin alltaf átt það á
hættu að Sambandið sjálft þurfi að
leita til hennar til að bæta úr erfiðum
rekstri annarra deilda. Til að bæta upp
þau útgjöld gæti verslunardeildin þurft að
leggja meira á vörur til kaupfélaganna.
Þá er vítahringnum lokað,- Það er nefni-
lega kerfið sjálft sem er vitlaust, og það
kemur niður á öllum, en þó fyrst og síðast
á neytendum.
Bændur og Sambandið
Lengi vel höfðu bændur mikil áhrif á
kaupfélögin og Sambandið. Frá þeim
Páll Bergþúrsson
71