Réttur


Réttur - 01.04.1987, Page 40

Réttur - 01.04.1987, Page 40
hafi komið frá labbröbbum. Johannesgat- an er stutt frá hæstu hæð í miðborg Stokkhólms. Áður en morðið var framið tóku tvær konur mörgum sinnum eftir manni sem líktist „Skugganum“ („Skugginn“ er mynd sem lögreglan lét gera eftir vitna- lýsingum nokkru eftir morðið) nálægt morðstaðnum. Maðurinn faldi eitthvað undir jakkanum, sem gæti hafa verið byssa eða labbrabba. Piltz og „Skugginn“ eru sláandi líkir. Tæpum fimmtán mínútum eftir að morðið var framið er svo hringt í hjónin í Bromma en eins og áður segir er símnúm- er þeirra næstum eins og símnúmerið hjá þáverandi forustumanni Svíþjóðardeildar WACL. Undarleg morðrannsókn Thomas Piltz heldur því fram að hann hal'i verið heima allt kvöldið og staðfestir sambýliskona hans þaö. Lögreglan tekur þessa fjarvistarsönnun góða og gilda. Pegar hjónin í Bromma áttuðu sig á því daginn eftir morðið að það sem sagt var í símann var satt tilkynntu þau lögreglunni um símhringinguna. Löngu seinna var haft samband við þau. Var það SÁPO og tilgangurinn ekki sá að rekja þessa mikil- vægu slóð heldur var reynt að fá hjónin til að viðurkenna að tímasetning þeirra á símhringingunni væri röng, jafnvel að hringt hafi verið í þau daginn eftir morðið. Svo óþægileg hafa viðskipti þeirra hjóna við lögregluna verið að kon- an segist næstum sjá eftir því að hafa til- kynnt um hringinguna. Lögreglan hefur sniðgengið fjöldann allan af vitnum og jafnvel reynt að gera vitnisburðinn tortryggilegan. T.d. hefur hún reynt að halda því fram að Krantz og strætisvagnstjórinn hafi ekki verið í sama vagni. Krantz náði tali af Hans Holmér, stjórnanda morðrannsóknarinnar, og fékk hann til að hlusta á sig en þegar Krantz sýndi honum mynd af lögreglumanninum stóð Holmér upp í fússi með ummælun- um „þetta er kollegi“. Sum vitni, eins og t.d. konan sem sá lögreglubílinn í grennd við morðstaðinn og ljósmyndarinn frá Dagens Nyheter, hafa ekki einu sinni ver- ið kölluð til yfirheyrslu. Lisbeth kona Palme, sem var við hlið hans þegar hann var skotinn og horfðist í augu við morð- ingjann, var ekki látin gefa lýsingu af honum fyrr en fjórtán mánuðum eftir að morðið var framið. Þegar umsjón'armönnum útvarpsþátt- arins „Kanalen“ barst bréfið um fund hægriöfgamannanna höfðu þeir samband við lögregluna. Hún sagðist hafa fengið sams- konar bréf og voru þeir beðnir að hafa ekki hátt um þetta meðan verið væri að athuga málið. Sjö vikum síðar, þegar Ijóst var að lögreglan ætlaði ekkert að gera í rnálinu, birtu þeir fréttina. Bréfið frá Ameríku um þátt WACL í morðinu hefur líka horfið, það er ekki einu sinni að finna á skrá. „Þetta er dularfullt,“ seg- ir Ingvar Eriksson, fulltrúi núverandi rannsóknarnefndar. Lögreglustjórinn í Stokkhólmi, Hans Holmér fyrrverandi yfirmaður SÁPO, stýrði morðrannsókninni fyrsta árið og átti þráfaldlega í útistöðum við saksókn- ara sem neituðu að taka mark á málatil- búnaði hans. Hér verður ekki orðlengt um öll þau skrítilegheit sem hann stóð fyrir en eftirfarandi látið nægja: Holmér segist hafa orðið handviss um það, strax í upphafi rannsóknarinnar þegar hann var á leiðinni á morðstaðinn, að morðingjann væri að finna í samtökum Kúrda, PKK. Þessi hugdetta var gjörsamlega gripin úr lausu lofti. Kúrdar höfðu síst af öllu 88

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.