Réttur - 01.04.1987, Blaðsíða 63
INNLEND agB ■
VÍÐSJÁ fllmm 1
Þingkosningar og ný
afturhaldsstjórn
Alþingiskosningarnar 25. apríl fóru
sem hér segir: Alþýðuflokkur fékk 23.260
atkv. og 10 þingmenn, en 15,2% at-
kvæða. Alþýðubandalagið fékk 20.382
atkv. og 8 þingmenn, en 13,3% atkvæða.
— Bætti Alþýðuflokkurinnn við sig 4
þingmönnum, en Alþýðubandalagið tap-
aði 2. — Er þetta í fyrsta skipti eftir 45 ár
að Alþýðuflokkurinn er sterkari en Al-
þýðubandalagið. — En fyrir báða verka-
lýðsflokkana er þetta slæm útkoma, þeg-
ar borið er saman við kosningarnar 1978,
er þeir höfðu samanlagt 45% atkvæða en
nú 28,5%.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 48.855 atkv.
og 1» þingmenn en 27,2% atkvæða. Olli
því tapi klofningur sá, er veitti Borgara-
flokki Alberts 15.518 atkv. (10,8%) og 7
þingmenn.
Framsóknarflokkurinn fékk 28.883
atkv. (18,9%) og 13 þingmenn.
Kvennalistinn fékk 11.646 atkv.
(10,1%9 og 6 þingmenn.
Hinir framboðsflokkarnir fjórir komu
engum manni að.
í rauninni voru kosningarnar harður
dómur yfir stjórnarflokkunum tveim, sem
höfðu byrjað ránsferil sinn með því að
stela þriðjungi af kaupi launafólks með
bráðabirgðalögum. En gífurlegur áróður
og fjáraustur fékk kjósendur til að
gleyma slíku á kjördegi og Albertsklofn-
ingurinn stafaði af klaufasparki frá for-
manni íhaldsins í „fótboltakappann“.
Það tók afturhaldsflokkana tvo rúma
tvo mánuði að skríða saman í nýja aftur-
haldsstjórn og ætlar hún sér að hafa Al-
þýðuflokkinn sem „hækju“, — svo notuð
sé forn samlíking, — þegar ríkasta auð-
mannastétt, sem yfir íslandi hefur
drottnað, byrjar árásir sínar á alþýðu að
nýju. Reynir þá á hve lengi margt af því
góða baráttufólki, sem í þeim flokki er,
lætur nota sig til slíks.
Það reynir nú á alla hreyfingu launa-
fólks í landinu — verkamenn, fagmenn,
kennara, háskólagengna menn og aðra að
sameina fylkingar sínar gegn þeim árás-
um, sem yfir vofa, — og á Alþýðubanda-
lagið að sigrast á eigin erfiðleikum og ná
aftur krafti og kyngi Sósíalista- og Komm-
únistaflokksins, t.d. frá 1942. Kennalist-
inn var sigursæll og reynist vonandi fær
um að nota þann sigur rétt.
Fyrsta verk hinnar endurnýjuðu ríkis-
stjórnar ríkustu yfirstéttar íslandssögunn-
ar, var að láta kasta hundruðum smálesta
kjöts á öskuhaugana, það var ekki hægt
að græða á því kjöti, — frekar skal þá
eyðileggja en gefa fátækum og hungruð-
um.
Hákristin ríkisstjórn; „Sjá, ég var hungr-
aður og þér gáfuð mér að eta.“ (Biblían.)
111