Réttur - 01.04.1987, Síða 41
ástæðu til að vilja Palme feigan, hann var
þeim frekar hliðhollur. Án þess að hafa
nokkuð milli handanna sem benti til að
Kúrdar hefðu komið nálægt morðinu not-
aði Holmér tækifærið og hundelti þá
mánuðum saman. Óð lögreglan fram með
alvæpni, dró fjölskyldufeður út úr rúmun-
um fyrir framan börnin, stillti fjölskyld-
um upp við vegg meðan húsrannsókn var
gerð og handtók fjölda manns. Ekkert
fannst athugavert við húsleitina nema þá
helst bækur eftir Karl Marx, en ekki er
saknæmt í Svíþjóð að hafa slíkt í fórum
sínum. Tilgangurinn með þessari svaka-
legu uppákomu virðist helst hafa verið sá
að skaffa heppilegan blóraböggul.
Hans Holmér var ábúðarmikill meðan
á þessu öllu stóð. Hann hafði um sig líf-
varðasveit alræmdra lögreglurudda og
hurfu bæði Palme og morðinginn í skugg-
ann fyrir honum. Hann var hálfpartinn
gerður að þjóðhetju í sænsku pressunni,
m.a. var hann útnefndur maður ársins í
fyrra. En þegar ár var liðið frá morðinu
og ekki lengur hægt að dylja það að
Holmér stóð með tvær hendur tómar og
buxurnar á hælunum var honum vikið frá
og morðrannsóknin endurskipulögð. Síð-
an það var gert hefur rannsókninni heldur
ekkert miðað áfram, nema hvað Lisbeth
Palme hefur verið yfirheyrð! Allt það sem
bendir til að morðingjann sé að finna í
röðum lögrelgunnar láta menn eins og
vind um eyru þjóta. Engu er líkara en
forðast sé að komast að hinu sanna. Pað
er því ekki nema von að tveir þriðjuhlut-
ar sænsku þjóðarinnar séu búnir að missa
alla von um að rnorðið verði nokkurn
tíma upplýst.
(Innskot í lok maí: Eftir að þessi grein
var skrifuð birtist sú frétt að lögreglan
hafi verið að finna kassa í herbergi á lög-
reglustöðinni með þeim gögnum um lög-
Stjórnandi morðrannsóknarinnar fyrsta árið, Hans
Holmér, í fylgd galvaskra lifvarða. Áður en Holmér
varð lögreglustjóri í Stokkhólmi var hann yfirmaður
sænsku leyniþjónustunnar, SÁPO, og þaðan fékk
hann hugdettuna að eltingaleiknum við Kúrdana.
Árið 1972, í forustutíð llolmérs, komst upp að
SÁPO stundaði njósnir innanlands og skráði
skoðanir fólks í algjöru trássi við sænsk lög.
reglu- og labbröbbumenn sem frá segir
hér að ofan. Kassinn á að hafa verið týnd-
ur í heilt ár! „Það er merkilegt að svona
geti gerst, svo ekki sé meira sagt,“ er haft
89