Réttur - 01.04.1987, Side 45
sænska ríkisins, utanríkismálanefndinni,
þar sem eiga sæti forustumenn þingflokk-
anna og konungurinn. Ekki minnkaði
fjaðrafokið þegar upp komst að Henn-
ingsson þessi væri jafnframt SÁPO njósn-
ari.
SÁPO, ríki í ríkinu
Einhver ráðherra varð náttúrulega að
hlaupa upp út af þessu og krefja SÁPO
skýringar á því að leyniþjónustan hefði
njósnara í leynilegustu nefnd ríkisins,
njósnara sem þar að auki er yst af hægri-
kanti með góð tengsl í samtökum eins og
EAP og WACL. SÁPO svaraði því til að
Henningsson (sem reyndar hefur gengið
undir nafninu „háttsettur ríkisstarfsmað-
ur“ í pressunni) hefði komið til SÁPO í
ágúst í fyrra og sagst ekki geta þagað
lengur um hátterni vinar síns „hægriöfga-
mannsins". SÁPO hefði þá ráðið hann til
að njósna um vini sína á hægrikantinum.
Jafnframt hefði ríkisstjórnin verið látin
vita um að utanríkisnefndarritarinn væri
orðinn SÁPO-njósnari.
Eftir að SÁPO kom með þessa sögu
hefur málið koðnað niður í pressunni eins
og aðrar bólur í þessu máli. Nú eru hins
vegar áreiðanlegar heimildir fyrir því að
hér er um yfirklór að ræða hjá SÁPO,
Henningsson hefur verið SÁPO-njósnari
í heil fimm ár. Og ekki nóg með það held-
ur er annar ritari í utanríkismálanefnd-
inni, Lars-Axel Nilsson, SÁPO-njósnari
og þó að Henningsson hafi verið vikið úr
nefndinni þá situr Nilsson þar enn.
Þannig fær SÁPO milliliðalaust upplýs-
ingar um það sem fer fram á fundum
utanríkisnefndarinnar. Hvert fara þessar
upplýsingar? Það er alþekkt að SÁPO
hefur náið samband við CIA, ísraeisku
leyniþjónustuna og jafnvel þá Suður-Afr-
ísku og að mikilvægar upplýsingar ganga
kaupum og sölum milli þessara leyniþjón-
usta á nokkurs konar vöruskiptagrund-
velli.
Tengist SÁPO morðinu á Palme?
SÁPO er ekki fyrsta leyniþjónustan
sem hagar sér eins og ríki í ríkinu. En
tengist SÁPO morðinu á Palme?
Það er í verkahring SÁPO að athuga
hvort þeim mönnum sem starfa sem ritar-
ar í utanríkismálanefndinni sé treystandi
og það hefði ekki getað farið framhjá
SÁPO hvers konar maður Henningsson
er. Það þarf því ekki mikið að velta vöng-
um til að láta sér detta í hug að SÁPO
hafi einfaldlega komið þessum njósnur-
um sínum fyrir í nefndinni, að þeir hafi
skýrt frá því að einhverjar (eða allar)
mikilvægar breytingar á utanríkisstefnu
Svíþjóðar strönduðu á Palme, að þessar
upplýsingar hafi komist til skila til hlutað-
eigandi ríkis/ríkja, að í stað þess að fræða
SÁPO um vini sína á hægrikantinum hafi
Henningsson verið falið að hafa samband
við þá, ...
„Ég fæ ónotatilfinningu þegar ég hugsa
til þess að það var bara SÁPO sem vissi
að Olof var án lífvarða morðkvöldið“,
segir Harry Schein nánasti vinur Palme
allt frá námsárunum.
Enn um símhringinguna
Við látum þessum vangaveltum lokið
þar sem greinin hér aö framan hófst: Sú
ályktun að símhringingin til hjónanna í
Bromma hafi verið ætluð þáverandi for-
ustumanni WACL er náttúrulega fjarri
því að vera staðfest staðreynd. Þessi
ályktun byggir eingöngu á því að sím-
númerin eru lík og það er náttúrulega oft
hægt að draga fram eitthvað þvíumlíkt.
Þannig hefur t.d. komið fram að Henn-
ingsson á nafna í símskránni og skeikar
bara einni tölu á símnúmeri þess manns
og símnúmeri hjónanna í Bromma.
93