Réttur


Réttur - 01.04.1987, Síða 53

Réttur - 01.04.1987, Síða 53
lega ábyrgð útlæg. Þess vegna eru það „réttindi einstakl- ingsins" í Bandaríkjunum að bera skot- vopn til „einkanota". Þess vegna mega af- brýðisamir eiginmenn í mörgum fylkjum skjóta keppinauta sína án þess að það sé refsivert. Þess vegna er litið á það sem sjálfsagðan hlut að menn komi á fót vopnuðum einkasveitum til að gæta eigna sinna og hagsmuna. Þess vegna eru Bandaríkin ekki bara land hins pólitíska morðs heldur land morðsins almennt. Þetta er „bandaríski draumurinn“. Þetta er einstaklingshyggjan færð út í sín- ar ystu öfgar. Þetta eru endanlegar af- leiðingar þeirrar nýfrjálshyggju sem hefur borist frá Bandaríkjunum til Evrópu síð- asta áratuginn. Síðastliðið ár var hið póli- tíska morð flutt inn til Norðurlandanna sem hluti þessarar bandarísku útflutn- ingsvöru. Því er oft haldið fram að frjálshyggjan og einstaklingshyggjan séu rétta svarið við þeim fjöldamorðum sem framin voru í nafni samhyggjukenningar nasismans. Annan lærdóm má þó draga af sögu Bandaríkjanna ekki síst af reynslunni um allan heim eftir seinni heimsstyrjöldina — allt frá My Lai til Stokkhólms. Stríðsuppeldi Rcagan sjálfur slapp naumlcga hér uni árið. Hann hrcyfir sig samt ckki úr stað án þess að öryggisverðir athugi út í æsar allar aðstæður og séu eins og mý á mykjuskán allt í kringum hann. Um daginn hélt hann „frelsisræðu“ við Bcrlínarmúrinn innan úr skothcldu glcrbúri. Sjáifur hcfur hann mcstu unun af ofbcldismyndum cins og Rambo. Þessar inyndir eru citt dæmið um afsiðun og oflicldishneigð í Bandaríkjunuin. Svona myndir (þcssar eru valdar af handahófi og eru langt frá því að vera verstar) cru seldar bandarískuin pottormum á saina hátt og leikaramyndirnar hér áður fyrr. I leikfanga- verslunum úir allt og grúir í morðóðum dúkkum búnum geigvænlcgiim drápstólum og í sjónvarpsþóttiini fyrir börn vaða uppi Rambo-ar og Contra-r. Er verið að undir- búa stríð?

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.