Réttur - 01.10.1988, Side 29
SIGURLAUG S. GUNNLAUGSDÓTTIR
OG GYLFI PÁLL HERSIR:
Söguleg tímamót
Fidel Castro talar um
byltingarsinnaðar aðferðir
og Ængólu
Hinn 26. júlí síöastliðinn voru 35 ár liðin frá mikilvægum tímamótum í barátt-
unni gegn einræöi Fulgencio Batista á Kúbu. Ungir byltingarsinnar er síðar
nefndu sig „26. júlí hreyfinguna“ gerðu þá árás á Moncada herbúðirnar í borg-
inni Santiago, austast á Kúbu. Dagurinn er þjóðhátíðardagur Kúbu.
í ár markaði 26. júlí verklok bygging-
aráfanga hjá mörgum hinna metnaðar-
fullu litlu vinnusveita, þar sem sjálfboða-
liðar höfðu lagt nótt við dag. I Santiago-
borg söfnuðust íbúarnir saman ásamt inn-
lendum og alþjóðlegum gestum, og
hlýddu á ræðu Fidels Castro, forseta
landsins. Tveir kaflar úr ræðunni fara hér
á eftir, en hún birtist í heild í Granma
Weekly Review, 7. ágúst 1988.
Þótt alþjóðlegar fréttastofnanir geri
Kúbu ekki liátt undir höfði, dylst fáum að
landið fer sínar eigin leiðir. Fyrir nokkr-
um árum hófst leiðréttingin, eða uppgjör
við þá stefnu sem byltingin hafði tekið. í
henni felst ekki afturhvarf frá sósíalisma,
heldur er kallað á að leiðrétt verði
mistök, sem stöfuðu al' einangrun Kúbu
og vantrú á byltinguna og alþýðuna.
Menn voru farnir að treysta á að gang-
verk og áætlanir leiddu af sjálfu sér til
sósíalisma. Þetta viðhorf hafði í för með
sér stöðnun og jafnvel afturhvarf á ýms-
um sviðum. Framleiðni minnkaði og gæði
framleiðslunnar rýrnuðu. Nýbyggingar
tóku afskaplega langan tíma, lauk jafnvel
ekki vegna þess að það borgaði sig ekki
samkvæmt stöðlum í kerfinu. Félagsleg-
um verkefnum á borð við dagvistarstofn-
anir miðaði óskaplega hægt, því að ýmist
skorti frumkvæði eða menn sem gegndu
þar lykilhlutverki mátu þau lítils. Sjálf-
boðaliðasveitir höfðu verið lagðar af og í
áætlunarkerfinu var sú skoðun ríkjandi,
að þær skiluðu ekki þeirri vinnu sem sóst
væri eftir. Margir stjórnendur verkefna
og umsjónarmenn verksmiðja höfðu það
uppgjafarviðhorf að hvetja verkafólk til
vinnu með bónusgjöfum og sumir þeirra
eignuðu sér hluta hinnar félagslegu fram-
leiðslu.
Hvorki áætlanir, gangverk né kapítal-
ískar aðferðir leiða til sósíalisma. Burðar-
ásinn í þeirri þróun er pólitísk vitund og
virkni vinnandi fólks, karla og kvenna.
Leiðréttingin byggist á því að verkafólk
173