Morgunblaðið - 05.01.2006, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 05.01.2006, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRAMLEIÐSLA á raforku með jarðgufuvirkjunum hefur verið að aukast og má ljóst vera að næg eft- irspurn virðist vera eftir rafmagn- inu. Að sögn viðmælenda blaða- manns þarf að huga að rannsóknarborunum með góðum fyrirvara þar sem ferlið tekur lang- an tíma, auk þess að vera nokkuð kostnaðarsamt, en hver rannsókn- arhola kostar á bilinu 200–250 millj- ónir króna. Orkuveita Reykjavíkur stóð í árs- lok 2005 fyrir tveimur rannsóknar- borunum, annars vegar í Hverahlíð og hins vegar Ölkelduhálsi. Hita- veita Suðurnesja fyrirhugar rann- sóknarboranir í Trölladyngju með vorinu og Landsvirkjun áætlar á næstu þremur árum að bora á bilinu 9-10 rannsóknarholur á háhitasvæð- unum í Bjarnarflagi, Kröflu, Gjá- stykki og Þeistareykjum. Auk þessa er, samkvæmt upplýs- ingum blaðamanns, verið að undir- búa umsókn um rannsóknarleyfi á fleiri svæðum á landinu, s.s. á Torfa- jökulssvæðinu, í Brennisteinsfjöllum og Köldukvíslarbotnum, sem eru norðan og austan við Hágöngulón á Sprengisandi. Af þessu má greini- lega merkja að vaxandi áhugi er á jarðvarmavirkjunarkostum. Mikil eftirspurn eftir rafmagni Hitaveita Suðurnesja (HS) er að byggja 100 MW virkjun á Reykja- nesi sem tekin verður í notkun í maí nk. Að sögn Júlíusar Jónssonar, for- stjóra HS, er þegar komin gufa fyrir 100 MW, en verið er að bora a.m.k. eina holu í viðbót. Öll orkan frá Reykjanesvirkjun fer til Norðuráls á Grundartanga. Aðspurður segir Júlíus ólíklegt að HS bori meira í bili. „Við komum til með að sjá hvernig svæðið bregst við þessari áraun sem á það er lagt með þessari virkjun. Í lok næsta árs eða 2008 þá sjáum við hvort svæðið þolir meira og þá kannski förum við af stað,“ segir Júlíus. Aðspurður segir Júlíus mikla eft- irspurn eftir rafmagni. Bendir hann þannig á að Norðurál hafi þegar óskað eftir meira rafmagni m.a. fyr- ir hugsanlegt álver í Helguvík og Alcan hefur einnig spurst fyrir um meira rafmagn vegna hugsanlegrar stækkunar álversins í Straumsvík. Að sögn Júlíusar eru fyrirhugaðar rannsóknarborarnir á vegum HS í Trölladyngju nú í vor, en þegar er búið að bora þar eina holu. Segir hann fyrstu holuna ekki hafa staðist væntingar, en lykilatriðið sé að hitta á réttan stað, þ.e. sprungu. „Við vitum að það er hitamyndun á þessu svæði, en flutningsmiðillinn, þ.e. vökvi, þarf að vera fyrir hendi til þess að flytja hitann úr berglög- unum upp á yfirborðið.“ Einnig hef- ur HS sótt um rannsóknarleyfi fyrir Krýsuvíkursvæðið og standa vonir forsvarsmanna fyrirtækisins til þess að ljóst liggi fyrir með vorinu hvað komi út úr því ferli. „Þetta er tímafrekt ferli, það tek- ur ár að rannsaka þetta. Þannig að ef menn ætla að vera tilbúnir að svara eftirspurn í framtíðinni þá verðum við að fara af stað með góð- um fyrirvara og rannsaka svæðin til að athuga hvort þau eru virkjana- hæf,“ segir Júlíus og bendir á að hver rannsóknarhola kostar um 200- 250 milljónir króna, en oftast þarf að bora tvær til þrjár slíkar til þess að vita hvort svæðið henti til virkjunar. Tíu tilraunaholur á næstu þremur árum Samkvæmt upplýsingum frá Bjarna Bjarnasyni, framkvæmda- stjóra orkusviðs Landsvirkjunar, hefur Landsvirkjun ekki borað eftir háhita í nokkur ár sökum þess að jarðhitaréttindin hafa ekki verið á hreinu. En næstu þrjú sumur eru fyrirhugaðar tilraunaboranir fyrir- tækisins á Norðausturlandi. Þar verða boraðar þrjár holur í sumar, ein í Bjarnarflagi, önnur á vestur- svæði Kröflu og sú þriðja á Þeista- reykjum. „Þetta eru allt álitleg háhitasvæði, þ.e. Bjarnarflag, Krafla, Gjástykki og Þeistareykir, þannig að við höf- um trú á því að þau geti gefið veru- lega orku, en það vitum við ekki fyrr en rannsóknarborunum er lokið,“ segir Bjarni, en ráðgert er að bora alls 9–10 holur á næstu þremur ár- um, þannig að hægt sé að hafa þokkalega góða vissu um getu svæð- anna í árslok 2008. Að sögn Bjarna standa vonir manna til að hægt verði að fá samtals á bilinu 300–400 MW út úr þessum svæðum. Gera má ráð fyrir að rannsóknarkostnaður fyrirtækisins á næstu þremur árum nemi um 2 milljörðum króna. Að- spurður hvert hugsanlegt rafmagn sem hægt væri að framleiða á við- komandi svæðum verði selt segir Bjarni það ekki liggja fyrir á þessari stundu. „En það er alveg ljóst að það er enginn notandi í dag fyrir þessa orku, þannig að það yrði að vera í tengslum við einhvers konar stóriðjuuppbyggingu,“ segir Bjarni og bendir í því samhengi á að heima- menn séu í samstarfi við iðnaðar- ráðuneytið og Alcoa um að skoða möguleika á byggingu álvers á Norðurlandi. Áætlanir OR um virkjanir á Hellisheiði fram til ársins 2020 Líkt og áður hefur komið fram stendur Orkuveita Reykjavíkur í miklum fjárfestingum í jarðgufu- virkjunum um þessar mundir, en bygging virkjunarinnar á Hellis- heiði er á lokastigi. Að sögn Guð- mundar Þóroddssonar, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, er búið að afla gufunnar fyrir fyrstu tvo áfanga Hellisheiðarvirkjunar. Þannig koma 90 MW inn á markað í október og september á þessu ári og síðan bæt- ast við 30 MW árið 2007. Aðspurður segir Guðmundur megnið af rafmagninu, eða 90 MW, þegar hafa verið selt til Norðuráls, en 30 MW fara inn á landsnetið. Alls er OR með tuttugu holur á Hellis- heiðinni, en talið er að Hengilssvæð- ið í heild sinni geti skilað 600 MW raforku með jarðhita. „Við erum með plön um virkjanir á Hellisheiði fram til ársins 2020, en við erum líka að virkja þetta fyrir heitt vatn,“ segir Guðmundur og bendir á að árið 2009 komi fyrsta vatnið frá Hellisheiði inn í heita- vatnskerfi borgarinnar, sem sam- svarar um 130 MW, en alls mun heitavatnsframleiðslan á svæðinu samsvara um 400 MW árið 2020. Spurður hvort markaður sé fyrir allt það rafmagn sem stefnt sé að því að fá út úr jarðgufuvirkjunum bendir Guðmundur á þær miklu stóriðjuframkvæmdir sem fyrirhug- aðar eru á næstu misserum sem út- heimti mikið rafmagn. „Við erum með samning við Norðurál um að út- vega þeim árlega rafmagn sem svar- ar til 170 MW frá og með árinu 2009, auk þess sem við erum með sam- komulag við Alcan í Straumsvík um að útvega þeim árlega rafmagn sem samsvarar 200 MW frá árinu 2011.“ Aðspurður segir Guðmundur OR hafa verið með rannsóknarboranir á tveimur nýjum svæðum nú í árslok 2005, annars vegar í Hverahlíð og hins vegar Ölkelduhálsi sem líka er á Hengilssvæðinu. Segir hann of snemmt að segja til um hver nið- urstaðan úr þeim borunum verði. Einnig er OR með borarnir á Skarðsmýrarfjalli, fyrir ofan núver- andi virkjunarsvæði fyrirtækisins á Hellisheiði, í umhverfismati. BORUN stendur nú yfir við rannsóknarholu Orkuveitu Reykjavíkur í Hverahlíð á Hellisheiði. Það er fyrirtækið Jarðboranir sem sér um þessa framkvæmd og hefur verkið gengið vel að sögn starfsmanna fyrirtækisins á vettvangi. Við verkið er notaður þriðji stærsti bor Jarð- borana, Sleipnir, en hann getur borað á 2400 metra dýpi hið mesta. Nú stendur yfir forborun og hefur Sleipnir borað niður á 100 metra dýpi. Framkvæmdir hófust við uppsetningu borsins skömmu fyrir jól en búist er við að bora niður á 2000 metra dýpi á næstu 40 dögum. Morgunbalðið/RAX Sleipnir borar í Hverahlíð Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Boranir undirbúnar á fjölmörgum stöðum Huga þarf tímanlega að rannsóknum vegna áforma um jarðgufuvirkjanir hérlendis RANNSÓKNARNEFND flugslysa beinir þeim tilmælum til Svifflug- félags Íslands að endurskoða og samræma leiðbeiningar til svifflug- manna um neyðarviðbrögð og að flugmálastjórn íhugi að taka upp eftirlit með ástandi og viðhaldi búnaðar sem svifflugfélög nota við iðkun svifflugs. Tilefnið er nið- urstaða rannsóknar á slysi er svif- flugu hlekktist á í flugtaki á Sand- skeiði. Tveir menn voru um borð og hlaut annar þeirra alvarleg meiðsli. Atvikum er lýst í skýrslu RNF sem er nýlega komin út en slysið varð síðdegis 7. september 2003 þegar svifflugan TF-SAC var í flugtaki en hún var toguð á loft með spili. Þegar vélin var komin í 20–25 metra hæð taldi flugmað- urinn að togvírinn hefði slitnað þar sem togið hætti. Losaði hann þá dráttartaugina með handfangi, ýtti stýrinu fram til að lenda og setti loftbremsur út. Fann hann þá að svifflugan féll hratt til jarðar og setti þær aftur inn. Skömmu fyrir lendingu tók hann loftbremsurnar aftur út. Svifflugan skall harkalega til jarðar og skemmdist töluvert. Flugmaðurinn slasaðist alvarlega en farþeginn slapp að mestu ómeiddur. Báðir voru með örygg- isbelti spennt. Fram kemur og í skýrslunni að spiltogið virtist hafa verið eðlilegt framan af en skömmu eftir flug- takið jókst snúningur spilsins skyndilega eins og vírinn hefði slitnað. Spilstjórinn kúplaði þá spilið frá mótornum og drap á hon- um. RNF leitaðist við að finna orsak- ir þess að flugmaðurinn taldi að vírinn hefði slitnað og eru þrjár orsakir taldar líklegar: Spilið hafi hætt að toga vegna þess að hand- fang þess var ekki læst, hafi hrokkið tilbaka og kúplað spilinu frá; að hnykkur hafi komið á vírinn vegna þess að hann vafðist óreglu- lega á spilið; hnykkur hafi komið á vírinn þar sem hann hafi ekki legið í sömu stefnu og svifflugvélin í flugtoginu. Í niðurstöðukafla skýrslu RNF segir ennfremur: „Við rannsóknina kom fram að talsverð áhersla er lögð á verklegar æfingar í við- brögðum við vírsliti hjá Svifflug- félagi Íslands. Í útgefnu efni er að finna misræmi á því verklagi sem skal beita þegar togvír slitnar þannig að ekki er ljóst hvort á að hafa forgang, að ná upp lending- arhraða eða losa togvírinn frá flug- vélinni. RNF telur að rétt hefði verið að ná upp lendingarhraða svifflugvélarinnar áður en ákvörð- un var tekin um að losa togvír eða setja loftbremsu á en líklegt er að notkun lofthemla við þær aðstæður sem flugvélin var í hafi valdið því að fallhraði flugvélarinnar varð mikill og því hafi hún lent svo harkalega sem raun bar vitni. Það er mat RNF að fyrstu við- brögð við vírsliti skuli vera þau að koma svifflugvélinni á lending- arhraða áður en frekari við- brögðum er beitt.“ Leiðbeiningar um neyðar- viðbrögð verði samræmdar Eftir Jóhannes Tómasson joto@mbl.is Eftirlit verði með ástandi og viðhaldi búnaðar sem svifflugfélög nota við iðkun sviflugs Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.