Morgunblaðið - 05.01.2006, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 33
DAGLEGT LÍF Í JANÚAR
Umbo›s- og sölua›ili
sími: 551 9239
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
Tilboð Tilboð Tilboð
Ýmis jólavara – Góður afsláttur
fimmtudag - föstudag - laugardag
Klapparstíg 44 - sími 562 3614
Í NÓVEMBER sl. komu fram
upplýsingar í Danmörku um
að svört eldhúsáhöld úr næloni
eða plasti gætu verið hættuleg
heilsunni þar sem krabbameins-
valdandi efni gætu komið fram við
notkun þeirra.
Ný rannsókn hefur leitt í ljós að
hættulegum eldhúsáhöldum hefur
fækkað á danska markaðnum þó
enn sýni niðurstöðurnar að fjórar
af 36 tegundum séu hættulegar. Í
ljós hefur komið að það eru að-
allega áhöld frá Kína sem búin eru
til úr ódýru plasti sem gefa
frá sér PAA, að því er fram
kemur á vef Politiken.
Um er að ræða efni í flokknum
PAA sem geta verið krabbameins-
eða ofnæmisvaldandi. PAA er not-
að sem herðir í lím, lakk og plast og
er að finna í ýmsum litarefnum.
Skaðleg áhrif geta komið fram
eftir langan tíma og þrátt fyrir að
heilsunni sé ekki bráð hætta búin
ráðleggja dönsk heilbrigðisyfirvöld
fólki að skipta svörtum plastáhöld-
um út fyrir annars konar áhöld.
Minna um
svört
plastáhöld
HEILSA
Hættulegum
eldhús-
áhöldum
hefur fækk-
að á danska
markaðnum.
Við eldum heima nánast áhverju kvöldi. Mér finnstmikilvægt að fjölskyldansafnist saman við matar-
borðið einu sinni á dag, ræði saman
og borði góðan mat,“ segir Hólm-
fríður Þorgeirsdóttir, verkefnis-
stjóri næringarmála hjá Lýð-
heilsustöð, en hún býr í Reykjavík
ásamt eiginmanni sínum og dóttur.
„Ég geri aðalinnkaup einu sinni í
viku í Bónus en þess á milli kaupi ég
t.d. grænmeti, ávexti og aðrar nauð-
synjavörur í þeim búðum sem verða
á vegi mínum. Ég fæ yfirleitt ekki
allt sem ég þarf í Bónus og fer því í
aðrar búðir líka. Ég kem oft við í
Hagkaupum í Kringlunni á leiðinni
heim því þar er gott úrval.“ Hólm-
fríður sér mikið til um matarinn-
kaupin á heimilinu. „Ég ráðfæri mig
nú gjarnan við þau hin um hvað við
eigum að hafa í matinn.“
Matarkarfan hjá Hólmfríði er fjöl-
breytt, hún kaupir mikið af græn-
meti og ávöxtum, fjölbreytt úrval af
léttum mjólkurvörum, gróft brauð
og hýðishrísgrjón svo eitthvað sé
nefnt. „Ég er meðvituð um hvað ég
set í matarkörfuna án þess að vera
með neinar öfgar í þeim efnum. Ég
kaupi ekki mikið af sætindum en ég
sleppi þeim nú ekki alveg heldur.
Það er hófið og fjölbreytnin sem
skiptir máli.“
Tilboð neysluhvetjandi
Hólmfríður segir trúlega ýmislegt
sjórna innkaupum hjá fólki. T.d. geti
tilboðin sem alltaf eru í gangi haft
áhrif á þau og hreinlega ýtt undir
óþarfa innkaup í sumum tilfellum.
„Magnið verður oft mikið meira en
fólk keypti annars, tilboð geta bein-
línis verið neysluhvetjandi.“ Hún
telur Íslendinga yfirleitt meðvitaða
um það hvað sé hollt og hvað ekki.
„Fólk veit kannski hvað er æskilegt
að setja ofan í sig en svo getur verið
erfiðara að fara eftir því. Það sem
skiptir mestu máli er að kaupa fjöl-
breyttan mat, hafa nóg af grænmeti
og ávöxtum á boðstólum en sætan og
feitan mat í hófi. Ég ráðlegg t.d.
þeim sem vilja draga úr neyslu sæt-
inda núna eftir jólahátíðina að
sleppa því að kaupa slíkt inn því þá
eru meiri líkur á að gripið sé í ávöxt
til að narta í milli mála en ýmis sæt-
indi.“ Hólmfríður segir þau ekki
kaupa mikinn skyndibita og það sé
orðið vinsælla á hennar heimili að
baka pítsuna heima en kaupa hana
tilbúna. „Þá aðstoðar dóttirin gjarn-
an við baksturinn, annars er það oft-
ast ég sem sé um eldamennskuna en
feðginin skiptast á um fráganginn
eftir matinn.“
Mikið af fiski
Hólmfríður segist elda fisk tvisvar
til þrisvar í viku. „Það getur stund-
um verið erfitt að ákveða hvað á að
vera í matinn, ég verð stundum
þurrausin af hugmyndum.“ Hún
segist þó ekki vera að hugsa um það
allan daginn hvað hún ætli að hafa í
kvöldmatinn heldur fari að hugsa
um það á heimleiðinni úr vinnunni.
Góður fiskur er í miklu uppáhaldi
hjá Hólmfríði. „Ég er vön að kaupa
fisk í fiskbúð og fer þá oftast í Haf-
rúnu í Skipholtinu eða í fiskborðin í
stórmörkuðunum.“ Hólmfríður gef-
ur hér að lokum lesendum uppskrift
að fiskrétti. „Mér finnst þessi fisk-
réttur mjög góður. Það er grænmeti
í honum en ég mæli með að fólk hafi
grænmetissalat og hrísgrjón með
líka.“
HVAÐ ER Í MATINN? | Fjölbreytni í matarinnkaupum skiptir máli
Góður fiskur í
miklu uppáhaldi
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Fiskur í
grænmetissósu
800 g fiskflök t.d.
þorskur, ýsa, búri eða
karfi
1/2 dós ananas í
eigin safa
1 msk matarolía
100–200 g sveppir
1 laukur
1/2 blaðlaukur
2 gulrætur
1 græn paprika
1 rauð paprika
(eða það grænmeti
sem er til í ískápnum
hverju sinni)
125 g smurostur
1 1/2 dl léttmjólk
salt
pipar eða sítrónupipar
paprikuduft
karrí
fiskteningur, ef vill
1. Fiskflökum raðað í smurt (með
olíu) ofnfast fat ásamt ananas
2. Grænmeti skorið niður og létt-
steikt í olíu á pönnu.
3. Bætið smurostinum í og bræðið
4. Hrærið mjólkina saman við
grænmetið í smáskömmtum
5. Kryddið og bætið fiskteningi
við ef vill
6. Hellið sósunni yfir fiskinn og
bakið í 200°C heitum ofni í hálf-
tíma
Morgunblaðið/Ásdís
Spurning:
Lesandi hringdi og vildi vita hvers vegna það tæki heila níu daga að bak-
færa fjárhæð af debetkortareikningi sem hefði af misgáningi eða vegna posa-
mistaka verið tekin út af reikningi.
Svar:
Halla Leifsdóttir, deildarstjóri í endurkröfudeild VISA Ísland, var spurð
hverju þetta sætti og hvort slík mistök væru algeng.
„Svona atvik eru sem betur fer ekki algeng, en þau koma fyrir og ástæð-
urnar geta verið margvíslegar, oftast samskiptavilla milli posa og færsluhirð-
is, svar misferst sem leiðir til þess að greiðsla er endurtekin og þá eru allt í
einu komnar tvær færslur.
Ef þetta uppgötvast af söluaðila eða viðkomandi viðskiptavini, er að sjálf-
sögðu hægt að leiðrétta strax. Hinsvegar leiðréttir tölvukerfi Reiknistofu
bankanna slíkar rangfærslur sjálfkrafa eftir níu daga ef ekkert annað hefur
verið gert.
Korthafi þarf að sjálfsögðu alltaf að fara yfir reikningsyfirlit sitt og ef
hann er ósáttur við eða þekkir ekki einhverjar tilteknar færslur þá gerir
hann athugasemd í banka sínum og hvert slíkt mál er skoðað.“
NEYTENDUR | Spurt og svarað
Bakfærslan
tekur níu daga
Morgunblaðið/Kristinn
Korthafar þurfa að fara vel yfir reikningsyfirlit hjá sér.
Hólmfríður eldar fisk
tvisvar til þrisvar
sinnum í viku og kaup-
ir hann oft í fiskbúð-
inni Hafrúnu.
Morgunblaðið/Þorkell