Morgunblaðið - 05.01.2006, Side 41

Morgunblaðið - 05.01.2006, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 41 MINNINGAR ✝ Álfheiður LáraÞórðardóttir frá Vestmannaeyjum fæddist á Akureyri 26. febrúar 1928. Hún lést á Landspít- ala – háskólasjúkra- húsi við Hringbraut 28. desember síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Þórður Jónsson skipasmið- ur og formaður í Vestmannaeyjum, f. 10.6. 1887, d. 1.2. 1939, og eiginkona hans, Kristbjörg Stefánsdóttir húsmóðir, f. 12.7. 1896, d. 8.3. 1984. Alsystur Álfheiðar Láru eru Oddný Guðbjörg, f. 15.8. 1929, d. 23.10. 1998; Ingibjörg Jónína, f. 11.8. 1932; Þóra, f. 16.4. 1939. Hálfsystkini samfeðra eru: Jónína Ásta, f. 27.11. 1918, d. 28.9. 1995; Bergþóra, f. 16.3. 1924, d. 16.7. 2004; Jón, f. 17.6. 1921; Svein- björg Alma, f. 22.12. 1925, d. 30.3. 1936. Hinn 27. nóvember 1965 giftist Álfheiður Lára eft- irlifandi eiginmanni sínum Ísak Þóri Þorkelssyni járn- smið, f. 28.9. 1932. Foreldrar hans voru Þorkell Guðmunds- son járnsmiður og Bergþóra Rannveig Ísaksdóttir. Álfheið- ur Lára og Ísak eignuðust einn son, Þórð, f. 8.5. 1966. Álfheiður Lára stundaði nám við húsmæðraskólann Ósk á Ísafirði 1946, hóf nám við Hjúkrunarskólann 1949 en varð að hætta námi vegna veikinda og var hún þrjú ár á Vífilsstöðum. Eftir veikindin fór hún til Vest- mannaeyja aftur og vann þar skrifstofustörf hjá Einari Sigurðs- syni útgerðarmanni þar til hún flutti frá Eyjum og stofnaði heim- ili sitt í Kópavogi. Útför Álfheiðar Láru verður gerð frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Elsku Lára mín. Okkur systurnar langar að minnast þín með nokkrum línum. Fyrst bjó fjölskyldan á Akureyri, það var áður en Þóra fæddist. Oft var brugðið á leik og aðdráttarafl hafn- arinnar var mikið eins og gengur og gerist um land allt. En hætturnar eru á næsta leiti. Klaufinn ég rann í Poll- inn, það var mér til lífs að þú varst á varðbergi, fljót að hugsa og snör í snúningum. Frá þeirri stundu leit ég á þig sem lífgjafa minn. Við fluttum til Vestmannaeyja 1937, þar sem við leigðum húsnæði hjá öndvegis hjónum, Sesselju og Boga í Vallatúni. Þar höfðum við að- eins búið í ein tvö ár þegar sorgin dundi yfir. Faðir okkar lést óvænt í svefni. Þú varst aðeins ellefu ára, Didda níu ára, ég sjö ára og mamma gekk með Þóru. Þetta voru erfiðir tímar fyrir móður okkar. Hún stóð ein með fjórar dætur, engar trygg- ingar voru og því var bara um eitt að ræða, finna leið til þess að framfleyta fjölskyldunni. Við fluttum í Skálanes og fljótlega fór mamma að selja fæði til kostgangara, enda frábær kokkur. Mikið reyndi á þær elstu, og það er víst að ábyrgðin lagðist hvað mest á þig. Þú stóðst undir því, ábyrgðarfull, samviskusöm og gættir okkar vel, dugleg að læra og vinna. Varst mömmu og okkur systrunum til halds og trausts á þessum erfiðu tímum. Ábyrgðin breytti æskunni mikið, en allar komum við þó sterkar út í lífið. Það hjálpaði líka til sú vinátta og sam- heldni sem ríkti í Lautinni og við Vesturveginn. Þvílík forréttindi að fá að alast þar upp, vinátta þeirra sem þarna bjuggu hefur haldist til dagsins í dag. Þú fórst í sveit á sumrin, oft með Mörtu vinkonu þinni. Síðan fóruð þið saman á húsmæðraskóla á Ísafirði ásamt Diddu systur. Þú ætlaðir að læra hjúkrun, en forlögin tóku í taumana, berklar komu upp og koll- vörpuðu öllum áformum. Í stað spennandi náms veiktumst við tvær og þú þurftir að dvelja í þrjú ár á Víf- ilsstöðum. Þegar þeirri dvöl var lokið breyttist ýmislegt. Af frekara námi varð ekki en þú fórst að vinna á skrif- stofu og vannst þar þar til ástin kvaddi dyra og þú fluttir í Kópavog- inn til þess að stofna þitt heimili. Þú varst einstök frænka öllum frændsystkinum þínum. Svona frænka sem allar ættir þurfa að eiga. Mundir alla afmælisdaga og alltaf tilbúin að hjálpa okkur systrunum að passa börnin. Þú hugsaðir ávallt fyrst um aðra. Börnin okkar fengu oft að gista í Skálanesi og þá var nú heldur betur dekrað við þau. Eftir að þú fluttir í Kópavoginn hélduð þið áfram ykkar nánu vináttu, Marta í Varmahlíð og einnig Svala í Sigtúni sem var nú orðinn nágranni þinn í Kópavogi. Við systur viljum þakka þeim fyrir hvað þær hafa verið góðar vinkonur alla tíð. Þú veiktist úti á Kanaríeyjum 23. nóvember. Þar varstu á sjúkrahúsi en varst síðan flutt heim með sjúkraflug- vél 14. desember. Þú dvaldir á Land- spítalanum – háskólasjúkrahúsi þar til þú lést. Þar fékkstu frábæra umönnun sem og á Kanaríeyjum. Við viljum færa starfsfólki E14 á Land- spítalanum, hjúkrunarfræðingi og fararstjórum Úrvals-Útsýnar okkar bestu þakkir. Við sendum Ísak og Þórði okkar innilegustu samúðar- og vinarkveðj- ur. Minning hennar lifi. Ingibjörg Jónína og Þóra. Elsku Lára. Þakka þér handleiðslu þína, ástúð og umhyggju. Strax við fæðingu naut ég umhyggju þinnar. Lífið hafði hagað því þannig til að þú áttir stóran þátt í uppeldi systra þinna og þegar Þóra litla systir eign- aðist sinn frumburð var nóg pláss í hjarta þínu til þess að gefa þessum litla einstakling ást og alúð. Þegar sú stutta dafnaði og fór að skynja lífið og tilveruna örlítið var lit- ið með lotningu upp til Láru frænku. Hún kunni að vélrita, vann á skrif- stofu, átti saumavél og hafði ætlað að verða hjúkrunarkona. Auðvitað ætl- aði ég að feta í fótspor hennar ég byrjaði að æfa mig á hjúkrunarstörf- unum. Þórður frændi var á aldur við mig, ég ráðskaðist með hann, sagði honum að hann væri sjúklingurinn, hann ætti að liggja í rúminu og síðan sprautaði ég hann. Að vísu hafði ég ekki sprautu en títuprjónn dugði ágætlega, eða þar til ég hafði brúkað hann, þá upphófst þvílíkur grátur að ég fór ekki frekar út á þá braut. Þú varst endalaust dugleg að hlúa að okkur systrabörnunum. Sérstak- lega nutum við þess börnin sem bjuggum í Eyjum, okkar annað heim- ili var Skálanes hjá ömmu og þér. Alltaf var pláss og aldrei var þröngt, þó svo að við skiljum ekki í dag hvar hægt var að koma svo mörgum fyrir í svo litlu húsi. Kjólarnir urðu óteljandi sem þú galdraðir fram í saumavélinni og ég er ekki frá því að nokkur stelpa í Vestmannaeyjum hafi átt svona flotta kjóla. Þegar horft er aftur varstu alltaf til staðar, verndandi, gefandi, minnug, leiðbeinandi með sterka skapgerð, gjafmild og frænd- rækin. Frænkan sem hafðir svo sterk áhrif á líf okkar, áhrif sem mótuðu líf- ið og enginn vill fara á mis við. Þú gafst okkur svo mikið, bæði systrum þínum og systkinabörnum, það verður seint fullþakkað. Það urðu þáttaskil í lífi þínu þegar þú hittir Ísak, við krakkarnir pískr- uðum svolítið, hún Lára átti kærasta. Þið rugluðuð saman reytum og þú fluttir frá Eyjum í Kópavoginn þar sem þið byggðuð ykkur heimili, heim- ili sem alltaf stóð opið og gestrisnin réð ríkjum. Það var síðan árið 1966 að sólargeislinn hann Þórður fæddist. Fæðing hans fullkomnaði lífið. Þú hafðir orð á því síðast þegar þú komst í heimsókn rétt áður en farið var í frí til Kanarí. Hvað stolt þú værir af hon- um, hann væri svo góður drengur og þér þætti svo óendanlega vænt um hann. Tilfinning sem væri svo stór að enginn gæti skilið hana. Kæra Lára ég þakka samfylgdina, og ég veit að minningarnar um þig ylja mér og öllum þeim, sem kynntust þér, um ókomin ár. Elsku Ísak og Þórður, Guð verði með ykkur og veiti ykkur styrk. Þín frænka Kristbjörg. Í birtu og fegurð jólahátíðar 28. desember andaðist á sjúkrahúsi hér í borg kær vinkona mín, Álfheiður Lára Þórðardóttir frá Vestmannaeyj- um. Var hún þá búin að heyja baráttu við margs konar sjúkdóma en hafði með sínum andlega styrk og kjarki alltaf risið upp. En einn er sá sem sigrar að lokum. Þegar Lára var átta ára flutti fjöl- skyldan til Vestmannaeyja, en þegar hún var ellefu ára andaðist faðir hennar snögglega og stóð þá móðir hennar ein uppi með dætur sínar fjór- ar. Þá kom dugnaður móðurinnar og myndarskapur sér vel. Þau hjónin höfðu nýlega fest kaup á húsinu Skálanesi við Vesturveg og setti hún þar upp matsölu sem hún annaðist í mörg ár og kom þar upp dætrum sín- um með sóma. Þegar Lára hafði lokið gagnfræða- prófi í Vestmannaeyjum fór hún í Húsmæðraskólann Ósk á Ísafirði. Síðan hóf hún hjúkrunarnám en varð að hætta því vegna veikinda. Eftir ára baráttu á Vífilsstöðum kom hún heim og fór fljótlega að vinna á skrif- stofu hjá Einari Sigurðssyni, kaup- manni og útgerðarmanni í Vest- mannaeyjum. Lára giftist Ísak Þorkelssyni úr Kópavogi og eignuð- ust þau einn son, Þórð, vel gefinn og góðan dreng. Svo vel vildi til að við Lára fluttumst báðar í Kópavog um líkt leyti og bjuggum skammt hvor frá annarri. Eins og Vestmannaeyinga er vandi þá drógumst við fljótt hvor að annarri og hittumst nánast daglega. Lára kom með sinn eina dreng og ég var með minn eina dreng og við hefðum ekki getað verið ánægðari þó við hefðum átt tíu börn. Við töluðum um liðna tíð í Vestmannaeyjum. Skemmtilegust fannst mér okkar sameiginlega minning um það þegar mæður okkar voru að steikja sunnu- dagskjötið, útvarpsmessan hljómaði og hænurnar vöppuðu fyrir utan eld- húsgluggann. Lára var ákaflega gestrisin og myndarleg húsmóðir. Hún hélt upp á öll afmæli og þar hittust systur henn- ar, mágar og vinir. Það er ekki langt síðan við vorum í veislu hjá henni. Vinkona mín sannfærir mig um að Lára sé komin til bjartari og betri heima og til þess „ljósanna hásals“ sendi ég henni mínar hjartans kveðj- ur og þakklæti fyrir allt. Jóhanna H. Sveinbjörnsdóttir. ÁLFHEIÐUR LÁRA ÞÓRÐARDÓTTIR Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningar- greinar Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og langafi okkar, JÓHANN EYJÓLFSSON, Dalsbyggð 21, Garðabæ, lést á Landspítala Fossvogi að morgni þriðjudags- ins 3. janúar. Fríða Valdimarsdóttir, Eyjólfur Jóhannsson, Markús Jóhannsson, Guðný B. Kristjánsdóttir, Hanna Fríða Jóhannsdóttir, Hlöðver Þorsteinsson, Helga Jóhannsdóttir, Aðalsteinn Svavarsson, barnabörn og barnabarnabarn. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, STEINVÖR KRISTÓFERSDÓTTIR, Vitastíg 8a, verður jarðsungin frá Útskálakirkju föstudaginn 6. janúar kl. 13.00. Barði Guðmundsson, Elísabet Guðmundsdóttir, Orhan Karaali, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Ingólfur H. Eyfells og barnabörn. Elskuleg frænka okkar, ÁSTA GUÐMUNDSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum laugardaginn 31. desember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 9. janúar kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Svava Hjaltadóttir, Oddný Finnbogadóttir. Móðursystir mín, ÞORBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, Mávahlíð 4, Reykjavík, lést á Grund að morgni mánudagsins 26. desember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Þorvarður Helgason. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HELGI INGVAR VALDIMARSSON frá Fosshóli, Miðfirði, Brekkubyggð 93, Garðabæ, lést á heimili sínu þriðjudaginn 3. janúar. Jarðsungið verður frá Garðakirkju þriðjudaginn 10. janúar kl. 13.00. Bryndís Stefánsdóttir, Jónína Helga Helgadóttir, Kristinn Gunnarsson, Þorsteinn Baldur Helgason, Ásta Sveinsdóttir, Valdimar Helgason, María Sif Númadóttir og barnabörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og systir okkar, MARGRÉT ÞORSTEINSDÓTTIR frá Vík í Mýrdal, lést á heimili sínu í Stamford Connecticut í Bandaríkjunum mánudaginn 2. janúar sl. Thor L. Crone, Marybeth Crone, Margret Ann og Kyle, Elín Þorsteinsdóttir, Halla Valdimarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.