Morgunblaðið - 07.02.2006, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
KAUPIR Í PIER 1 IMPORTS
Fyrirtæki í eigu Jákups á Dul Jac-
obsen, sem gjarnan er kenndur við
Rúmfatalagerinn, hefur keypt 9,9%
hlut í bandaríska fyrirtækinu Pier 1
Imports. Bandaríska fyrirtækið rek-
ur húsgagnaverslanir um allan heim
undir vörmerkjunum Pier 1 og The
Pier. Jákup hyggst ekki skipta sér af
rekstrinum fyrst um sinn.
60% háð örvandi efnum
Yfir 60% þeirra sem koma á Vog
eru háð örvandi efnum, og er am-
fetamín það sem kalla mætti harð-
asta efni Íslendinga. Nýverið voru
karl og kona handtekin í Leifsstöð
með tæp 4 kg af amfetamíni, en lög-
regla verst allra frétta af málinu.
Fjárhagsstaða LÍ góð
Hlutfall erlendrar hlutabréfa-
eignar Landsbanka Íslands hefur
hækkað úr um 15% í tæp 50% á síð-
ustu einu til tveimur árum, sagði
bankastjóri bankans á kynning-
arfundi fyrir fjárfesta í London.
Hann sagði áhættudreifingu bank-
ans betri nú en áður. Bankinn er
með rekstur í 12 löndum en þau voru
þrjú fyrir rúmu ári.
Mannskæð mótmæli
Að minnsta kosti fimm biðu í gær
bana í Afganistan í mótmælum sem
tengdust birtingu dagblaða á Vest-
urlöndum á skopmyndum af Mú-
hameð spámanni.
Ættingjar krefjast svara
Ættingjar fólks sem drukknaði
þegar ferja sökk í Rauðahafið að-
faranótt föstudags réðust inn á
skrifstofur eigenda ferjunnar í
Egyptalandi í gær og helltu þar úr
skálum reiði sinnar vegna þess
hversu illa þeim hefur gengið að fá
upplýsingar um afdrif ástvina sinna.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 26
Fréttaskýring 8 Viðhorf 28
Úr verinu 12 Bréf 29
Viðskipti 14/15 Minningar 32/37
Erlent 16/17 Skák 37
Heima 18 Dagbók 40/43
Akureyri 19 Víkverji 40
Austurland 19 Velvakandi 41
Suðurnes 20 Staður og stund 42
Landið 20 Bíó 46/49
Daglegt líf 21 Ljósvakamiðlar 50
Menning 22 Veður 51
Umræðan 23/29 Staksteinar 51
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Ræðum málin.
Ég verð á beinni línu á Útvarpi Sögu fm 99.4 í dag kl. 17. Sími: 588 1994
HUGSUM STÓRT!
ÉG SET MENNTAMÁLIN Í ÖNDVEGI.
Grunnskólar Reykjavíkur hafa tekið
stakkaskiptum eftir að borgin tók þá
yfir. Reykvísk börn eiga rétt á því að
tómstundir þeirra séu hluti af samfelldum
skóladegi. Fyrir þessu vil ég beita mér.
KÁRAHNJÚKAVIRKJUN verður
gangsett hraðar en áætlanir gera
ráð fyrir verði tafir á að hægt verði
að gangsetja fyrstu vél virkjunar-
innar í apríl 2007 og samið verður
við Alcoa um að þeir gangsetji ál-
verksmiðjuna í takt við það.
Óbreytt er að virkjunin á að vera
komin í fullan gang í október 2007,
en bor 2 í Kárahnjúkavirkjun hefur
enn átt í talsverðum erfiðleikum á
borsvæðinu undir Þrælahálsi og er
á eftir áætlun.
Sigurður St. Arnalds, talsmaður
Kárahnjúkavirkjunar, sagði að ef
tafir yrðu á að göngin yrðu tilbúin
yrði virkjunin gangsett hraðar en
áætlað hefði verið. Samkvæmt nú-
gildandi áætlun væri gert ráð fyrir
að gangsetja eina vél á mánuði á
sex mánaða tímabili frá apríl fram í
október 2007. Ef einhverra hluta
vegna yrði ekki hægt að gangsetja
fyrstu vél á réttum tíma yrði virkj-
unin gangsett hraðar og samið yrði
við Alcoa um það að gangsetja verk-
smiðjuna í takt við það.
Sigurður sagði að Landsvirkjun
og Alcoa væru alltaf öðru hvoru í
sambandi og bæru saman bækur
sínar um það hvernig gengi, því að
gangsetning álversins og orkuvers-
ins þyrftu að haldast í hendur.
Hann vissi ekki betur en að fram-
kvæmdir við álverið gengju sam-
kvæmt áætlun „en þegar nær dreg-
ur munu menn einfaldlega samhæfa
þessa gangsetningu“, sagði Sigurð-
ur.
Hann sagði að menn væru alls
ekki búnir að gefa það frá sér að
fyrri áætlanir gengju upp, en að
sjálfsögðu yrði rætt á næstunni
hvaða möguleikar væru fyrir hendi
ef gangagerðin tefðist enn. Svarið
við því væri einfaldlega að samhæfa
gangsetninguna og gangsetja bæði
virkjunina og álverið hraðar en til
hefði staðið. Ef gangsetning fyrstu
vélar tefðist um mánuð yrði virkj-
unin gangsett á fimm mánuðum og
svo framvegis, en það væri óbreytt
að stefnt væri að því að virkjunin og
álverið yrðu komin í fullan gang í
október 2007.
Virkjunin samanstendur af sex
vélum sem hver um sig framleiðir
115 megavött. Fimm vélar verða
starfræktar í senn fyrir álverk-
smiðjuna en ein er til vara.
Aðspurður hvort mögulegt sé að
taka orku annars staðar úr raforku-
kerfinu verði tafir á gangsetningu
sagði Sigurður að það væri fræði-
legur möguleiki að taka ákveðið
magn af byggðalínunni í byrjun, en
það hefði ekkert verið rætt. Flutn-
ingsgeta byggðalínunnar takmark-
aði þá möguleika eðlilega.
Kárahnjúkavirkjun verður gangsett hraðar en áætlað var tefjist gangagerð
Virkjunin á að vera komin í
fullan gang í október 2007
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
MARGIR leggja leið sína í Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inn í Laugardal, enda margt fróðlegt að sjá á þeim
bænum. Selir garðsins hafa löngum verið vinsælir en
segja má að þeir hafi mætt jafningja sínum þegar ljós-
myndari Morgunblaðsins átti leið hjá. Úrsúla hafði
mun meiri áhuga á ljósmyndaranum en Björk vinkona
hennar sem horfði með athygli á selina leika sér í
tjörninni.
Morgunblaðið/Eggert
Selurinn í tjörninni fangar athyglina
ÞRÓUN eldsneytisverðs er af-
ar óljós þessa dagana og þver-
stæðukenndar fréttir og spá-
sagnir sem berast í þeim
efnum. Í síðustu viku stóðu
spár til þess að verðið til
skamms tíma myndi lækka, en
Magnús Ásgeirsson hjá Olíufé-
laginu ESSO segir að fréttir
sem bárust í gærmorgun af
stöðu alþjóðamála hafi aukið
svartsýni með það að verðið
lækki á næstunni.
Magnús sagði að mjög erfitt
væri að spá um verðþróunina
nú, því fregnir af stöðu mála á
alþjóðavettvangi varðandi Íran
hefðu truflandi áhrif á markað-
inn. Nú lægi í loftinu að Íranar
myndu hugsanlega stöðva út-
flutning á olíu, þótt fréttir um
hið gagnstæða hefðu borist í
síðustu viku, og það truflaði
lækkunarferlið nú. „Maður get-
ur alveg eins búist við að verðið
hækki, ég er ekki of bjartsýnn,“
sagði Magnús.
Algengt verð á 95 oktana
bensíni í sjálfsafgreiðslu er nú
109,70 kr.
Óljósar
horfur
með elds-
neytisverð
SAMKVÆMT fjárhagsáætlun er
gert ráð fyrir að kostnaður við mat-
væli í mötuneytum grunnskólanna í
Reykjavík sé um 410 milljónir króna
á ári og annar sérstakur kostnaður
vegna mötuneyta, svo sem vegna
aukinna þrifa, orku o.fl., sé um 170
m.kr. Það gera því samtals um 580
m.kr. Á móti er gert ráð fyrir
tekjum af matarsölu upp á um 480
m.kr. og niðurgreiðir borgin því mat
grunnskólabarna um tæpar 100
m.kr. á ári. Þá er ekki meðtalinn
kostnaður vegna skólaliða eða kenn-
ara sem hjálpa til í hádeginu.
Árið 2003 var reglum um fjár-
hagsaðstoð Reykjavíkurborgar
breytt og ný ákvæði sett inn þar sem
kveðið er á um að veittur skuli sér-
stakur styrkur til barna í efnalitlum
fjölskyldum til að mæta kostnaði við
leikskóla, heilsdagsskóla, daggæslu,
skólamáltíðir og tómstundir. Árið
2004 voru rúmar 25 m. kr. veittar í
sérstaka fjárhagsaðstoð til barna
vegna þessa en tæpar 30 m.kr. á síð-
asta ári. Alls fengu 477 heimili þessa
þjónustu árið 2004 og 439 árið 2005.
Á þessum heimilum voru um það bil
750 börn undir 18 ára aldri árið 2005
en grunnskólabörn í Reykavík eru
um 15.000 talsins.
Borgin niðurgreið-
ir mat um tæpar
100 milljónir
Höfða þarf til | 11