Morgunblaðið - 07.02.2006, Qupperneq 21
GOÐSÖGNIN um að netverj-
ar séu einfarar sem eigi fáa
vini og séu mest í samskiptum
á spjallrásum virðist vera röng.
Þeir sem eru í samskiptum á
Netinu eru einnig líklegir til að
vera félagslyndir út á við sam-
kvæmt skýrslu frá bandarísku
stofnuninni The Pew Internet
& American Life Project sem
sérhæfir sig í rannsóknum á
áhrifum Netsins á einstaklinga
og samfélag. Fólk sem eyðir
tíma á Netinu á stærri vinahóp
en aðrir og þeir sem senda
tölvupóst til vina og kunningja
hafa 25% oftar símasamband
við sömu manneskjur miðað við
þá sem senda ekki póst.
Félagslyndir
netverjar
VÍSINDAMENN við Karol-
inska sjúkrahúsið í Stokkhólmi
eru komnir nokkuð á veg með
að sanna að hægt sé að búa til
bóluefni gegn æðakölkun. Í
Svenska Dagbladet kemur
fram að niðurstöður nýrrar
rannsóknar franskra og
sænskra vísindamanna stað-
festi enn að bólga komi við
sögu í æðakölkunarferlinu og
vísindamennirnir hafa greint
þau efni í ónæmiskerfinu sem
geta stöðvað ferlið. Þróun
bóluefnis er markmið vísinda-
mannahópsins.
Fyrsta stig æðakölkunar,
sem síðar getur valdið hjarta-
áfalli, er að vonda kólesterólið
LDL sest innan á æðaveggina.
Afleiðingin er að ónæm-
iskerfið byrjar að framleiða
efni sem leiða til bólgu sem
gerir æðakölkunina enn verri.
Í SvD kemur fram að viðbrögð
ónæmiskerfisins stjórnist m.a.
af hvítu blóðkornunum, t-
frumunum. Sumar t-frumur
geta stöðvað óheillaþróunina
með því að framleiða ákveðið
efni sem kallast TGF-beta. Ef
þær eru of fáar eða virka ekki
sem skyldi fer æðakölkunin
hins vegar á fullt. Þessi vernd-
andi áhrif hafa vísindamenn-
irnir sannað með dýra-
tilraunum og niðurstöðurnar
vekja vonir um að hægt verði
að þróa bóluefni gegn æða-
kölkun. Bóluefnið yrði búið til
úr þeim efnum sem vekja
verndandi t-frumur til virkni,
þá e.t.v. hlutum af LDL-
sameindum, þ.e. vonda kólest-
erólinu. Frekari rannsóknir
þarf til að ákvarða nánari
samsetningu hugsanlegs bólu-
efnis.
HEILSA
Bóluefni gegn æðakölkun
Spurning: Lesandi hringdi og
vildi fá svör við því hvort þjón-
usta sú sem Blómaval auglýsti í
umboði Interfloru væri í reynd
virk eftir slælega reynslu af
þessari þjónustu.
„Fólk ætlaði að senda blóm til
ættingja í Bandaríkjunum. Haft
var samband við Blómaval, sem
auglýsir sendingar á blómum um
allan heim í gegnum Interfloru.
Sex þúsund krónur voru greiddar
fyrir blómvöndinn, sem aldrei
barst viðtakanda. Hvernig geta
viðskiptavinir treyst því að blóm,
sem send eru með þessum hætti,
skili sér á réttan stað?“
Upplýsingar sem nákvæmastar
Svar: Að sögn Gyðu Ragn-
arsdóttur í pantanaafgreiðslu
Blómavals geta alltaf komið upp
tilvik af þessu tagi þó þau séu
ekki algeng. En komi þetta fyrir
fær fólk vitanlega endurgreitt.
„Helstu ástæður þess að send-
ingar berast ekki réttum aðilum
eru yfirleitt þær að blómasalarnir
eru ítrekað búnir að reyna að ná
í viðtakendurna, en án árangurs.
Við leggjum því ríka áherslu á að
hafa rétt símanúmer með pönt-
unum og aðrar upplýsingar sem
nákvæmastar. Fái ég kvörtun um
að sending hafi ekki borist, sendi
ég kvörtunina áfram út og fæ
staðfestingu um að sending hafi
ekki borist réttum aðilum ein-
hverra hluta vegna.“
Samdægurs innan Norðurlanda
„Eftirspurn eftir þessari þjón-
ustu er alltaf að aukast hjá okkur
og það er ekki aðeins verið að
senda blóm því stundum vill fólk
senda bæði vín og konfekt. Þegar
pöntun berst til okkar sendum
við upplýsingarnar í netpósti til
miðstöðvar Interfloru í Kaup-
mannahöfn sem síðan sér um að
dreifa pöntunum út um allan
heim eftir því hvert sendingin á
að fara.
Þjónustan tekur mislangan
tíma eftir því hvert sendingarnar
eiga að fara. Sendingar frá Ís-
landi til viðtakenda á hinum
Norðurlöndunum gætu borist
samdægurs fái ég pöntun fyrir
hádegi, en almennt til annarra
landa er fyrirvarinn sólarhringur
að lágmarki. Sé verið að panta
blóm vegna útfara úti í heimi,
þarf tveggja til þriggja sólar-
hringa fyrirvara þar sem ferlið er
lengra. Oft þarf að útbúa borða á
blómaskreytingar og koma þeim í
kirkju.“
Að sögn Gyðu er lágmarksverð
hjá Interfloru. Til Danmerkur er
t.d. ekki farið af stað með Int-
erfloru fyrir minna en 3.500 kr.
Til Englands er lágmarksverðið
4.200 kr. og til Bandaríkjanna
5.100 kr. Innifalið í því verði er
blómvöndurinn ásamt þjónustu-
og sendingargjaldi.
Morgunblaðið/Ásdís
Blómvönd-
urinn barst
aldrei
NEYTENDUR |
Spurt og svarað
Ég varð ástfangin af þessari hörpuum leið og ég leit hana augum, ogþá var ekki aftur snúið,“ segir hinátján ára gamla Tanja Björk Óm-
arsdóttir sem féll alveg óvænt kylliflöt fyrir
hörpu sem hún sá þegar hún nýlega kom við í
versluninni Hljóðheimur Sangitamiya á Grett-
isgötu. „Ég hef alltaf verið mjög hrifin af
öðruvísi hljóðfærum og ákvað að kíkja í þessa
verslun af því mér fannst spennandi það sem
ég hafði heyrt af ólíklegustu hljóðfærum sem
þar væru til sölu. En þegar ég sá þessa hörpu
þá vissi ég að hún yrði mín. Mig hefur alltaf
langað til að læra á hörpu því amma mín hef-
ur sagt alveg frá því ég var lítil að ég væri
með hörpuhendur. Þess vegna hefur blundað
lengi í mér að læra á hörpu og nú ætla ég að
láta verða af því,“ segir Tanja Björk sem er
ekki byrjandi á tónlistarsviðinu því hún hefur
lært á píanó, trompet, blokkflautu og tromm-
ur, en núna ætlar hún að einbeita sér að hörp-
unni nýju. „Núna er ég að grufla í bók sem
amma mín og afi sendu mér frá Bandaríkj-
unum en þar eru kenndar handstöður og
hvernig á að spila á hörpu. Ég ætla að byrja á
svolitlu sjálfsnámi en síðan ætla ég að athuga
hvort ég hef uppi á einhverjum hörpukenn-
ara.“
Verðandi köfunarkennari
Þótt harpan hennar Tönju Bjarkar sé lítil
og nett þá er hún dýrt hljóðfæri, en Tanja
segist safna sér fyrir þeim hlutum sem hana
langar að eiga allt sitt líf, og þessi harpa er
þar á meðal. „Ég lít á hana sem mína fyrstu
hörpu og þegar ég verð búin að læra almenni-
lega á hana, þá er aldrei að vita nema ég fjár-
festi í stórri hörpu.“ Tanja Björk hefur alltaf
elskað tónlist, eins og hún orðar það sjálf, og
hefur auk tónlistarnáms lært ballett til margra
ára. „Dansinn var fyrsta ástin mín, en ég
þurfti að hætta í honum og það kemur ekkert
í staðinn fyrir hann,“ segir Tanja Björk sem
er listræn að eðlisfari, málar og saumar svo
fátt eitt sé nefnt, því hvers konar sköpun höfð-
ar til hennar. „Ég hvet alla til að prófa eitt-
hvað nýtt, því maður veit aldrei nema það sé
akkúrat það sem maður á að vera að gera,“
segir Tanja Björk sem er að hugsa um að fara
bráðlega til útlanda og næla sér í réttindi til
að kenna köfun, en eitt af því fjölmarga sem
hún hefur lært er köfun.
ÁHUGAMÁL | Tanja Björk Ómarsdóttir féll óvænt fyrir hörpu
Amma segir að ég
hafi hörpuhendur
Morgunblaðið/ÞÖK
Tanja Björk handleikur nýju hörpuna af mikilli alúð.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Daglegtlíf
febrúar
VALGAR‹SSON
KJARTAN
3sæti
Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík
Samfelldur skóli