Morgunblaðið - 11.03.2006, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 27
MINNSTAÐUR
Ráðstefna SI á stórsýningunni Verk og vit 2006
fimmtudaginn 16. mars frá 14:00 til 16:30
HEILBRIGÐUR
ÚTBOÐSMARKAÐUR?
Skráning fer fram á www.si.is
SAMTÖK IÐNAÐARINS
WWW.SI.IS
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík - Sími 591 0100 - Fax 591 0101 - mottaka@si.is - www.si.is
SI efna til ráðstefnu um útboðsmál við verklegar framkvæmdir fimmtudaginn 16. mars
á stórsýningunni Verk og vit 2006 í nýju Íþrótta- og sýningahöllinni í Laugardal.
Ráðstefnan hefst kl. 14:00 í sal-1 og stendur til 16:30. Hún er öllum opin
og aðgangur ókeypis en tekið er við skráningum á www.si.is.
Að ráðstefnu lokinni bjóða SI gestum að vera við opnun
sýningarinnar Verk og vit 2006 kl. 16:30
Dagskrá:
Viðhorf
eftirlitsaðila
Mikael J.
Traustason,
Fjölhönnun ehf.
verkfræðistofu
Haukur
Magnússon,
framkvæmdastjóri
tæknisviðs ÍAV hf.
Útboðsgögn
- tæknilegar
lýsingar
Útboðs-
skilmálar
Kolbeinn
Kolbeinsson,
aðstoðar-
framkvæmda-
stjóri Ístaks hf.
Erlendur
Gíslason,
hrl. hjá LOGOS
lögmannsþjónustu
Ábyrgðir
í mannvirkja-
gerð
Lausn
ágreinings-
mála
Kristrún
Heimisdóttir,
lögfræðingur SI
Setning
ráðstefnu
Þorsteinn
Víglundsson,
stjórnarmaður
í SI og ráð-
stefnustjóri
Neskaupstaður | „Þetta er algjör
bylting fyrir okkur,“ sagði Björn
Magnússon, forstöðulæknir Fjórð-
ungssjúkrahússins í Neskaupstað
(FSN), þegar ný röntgendeild
sjúkrahússins var formlega vígð á
dögunum. Undanfarið ár hafa staðið
yfir framkvæmdir við endurnýjun
tækja og breytingar á húsnæði.
Fyrir ári var röntgendeild FSN rek-
in með úreltu 24 ára gömlu filmu-
röntgentæki sem var löngu komið á
„síðustu geislana“ eins og Valdimar
O. Hermannson, rekstrarstjóri Heil-
brigðisstofnunar Austurlands og
FSN, komst að orði. Nú er öldin
önnur og í dag státar FSN af einni
fullkomnustu röntgendeild landsins
með svokölluðu tveggja sneiða
tölvusneiðmyndatæki, nýju röntgen-
tæki og öðru færanlegu, auk staf-
ræns myndgreiningabúnaðs.
Enn sem komið er hefur sneið-
myndatækið ekki verið rekið á full-
um afköstum vegna þess að ekki
hefur tekist að fastráða geislafræð-
ing til starfa „en þess í stað hafa
komið hingað farandgeislafræðingar
aðra hverja viku. Við stefnum hins
vegar að fullum afköstum á þessu
ári með ráðningu geislafræðings á
næstunni.
Þá eru greiningar unnar í sam-
vinnu við röntgenlækna á Akureyri
og með þessari nýju tækni er þetta
nánast eins og að hafa röntgenlækni
í næsta herbergi, þó að hann sé
norður á Akureyri,“ sagði Björn.
Metafköst hjá FSN í fyrra
Bæði röntgentækið og sneið-
myndatækið eru tengd við nýja
starfræna myndgreiningabúnaðinn,
sem aftur er beintengdur við Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri svo að
allur úrlestur rannsókna skilar sér
aftur fljótt og vel. Sneiðmyndatækið
er gefið af Hollvinasamtökum FSN
og rafrænn myndgreiningarbúnaður
af Alcoa.
Að sögn Björns var árið 2005 eitt
hið viðburðaríkasta í sögu FSN,
jafnframt því sem afköst á flestum
sviðum slógu öll fyrri met. Innlögn-
um og ferilverkum fjölgaði verulega
og vekur þar athygli að fjöldi inn-
lagðra útlendinga hefur aukist um-
talsvert, eða úr 17 manns árið 2004 í
58 manns árið 2005. Þá voru fæð-
ingar fleiri en þær hafa verið sl. tíu
ár og umsvif á rannsóknarstofu mun
meiri en áður.
„Það er ljóst að miðað við starf-
semi er hér undirmönnun, sérstak-
lega á læknum, sem vonandi verður
bætt úr á árinu 2006,“ sagði Björn
að lokum.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Manni rennt inn Guðrún K. Einarsdóttir og Jóna K. Aradóttir undirbúa
sneiðmyndatöku í nýju tæki á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað.
Ein fullkomnasta
röntgendeild landsins
Efni í kerskála | 70 leiðara-
hringjum fyrir kerskála álversins
á Reyðarfirði var skipað upp í vik-
unni. Hver leiðarahringur vegur
30 tonn, er 16 metra langur og 6
metra hár. Þeim verður komið fyr-
ir í kerskálunum þar sem þeir
munu mynda ramma utan um
hvert ker og leiða þann rafstraum
sem þarf til rafgreiningar áls.
Samtals verður 336 leiðara-
hringjum komið fyrir í kerskál-
unum tveimur. Þetta er önnur
sending leiðarahringja af fimm
sendingum sem koma til Fjarða-
álsverkefnisins frá Kanada.
Kárahnjúkavirkjun | Montavar
Metalna átti lægsta tilboð í loku-
búnað og stálfóðringu fyrir
Hraunaveitu og Ufsarstíflu, verk-
hluta KAR-35 í Kárahnjúkavirkj-
un.
Verkið var boðið út í nóvember
2005. Það felst í deilihönnun, út-
vegun efnis, framleiðslu, flutningi,
uppsetningu og prófun á lokubún-
aði með tilheyrandi afl- og stjórn-
búnaði og stálfóðringu. Lokarnir
eru sex talsins og áætlað er að
verkefnið kalli alls á um 300 tonn
af stáli. Verklok eru áætluð í jan-
úar 2008. Tilboð Montavar Me-
talna nemur tæpum 373 millj-
ónum, en kostnaðaráætlun
Landsvirkjunar gerði ráð fyrir
tæpum 423 milljónum króna. Níu
aðilar buðu, m.a. tvö íslensk fyr-
irtæki.
Einn verktaki bauð | Héraðs-
verk ehf. var eini aðilinn sem bauð
í gerð Hólsufsavegar á Fljótsdals-
heiði. Landsvirkjun bauð verkið út
og felur það í sér lagningu um
þriggja kílómetra langs vegar frá
núverandi vegi að aðgöngum 1 í
sunnanverðu Miðfelli og að Hólsufs
sunnar á Fljótsdalsheiði. Þar verð-
ur útbúið borstæði fyrir þrýstijöfn-
unarstrokk og byggðir tveir vatns-
varnargarðar. Tilboð Héraðsverks
nam rúmlega 26,5 milljónum króna,
eða um 74% af kostnaðráætlun
Landsvirkjunar.
AUSTURLAND